Davíð Þór úr Gettu betur í guðfræði 21. júlí 2007 03:45 Davíð Þór er hættur sem dómari í Gettu betur og hyggst setjast á skólabekk þegar hausta tekur. Fréttablaðið/Anton
Davíð Þór Jónsson hefur ákveðið að venda kvæði sín í kross. Hann mun ekki semja spurningar né dæma í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur á þessu ári heldur hyggst hann endurnýja kynnin við guðfræðideild Háskóla Íslands. „Í ljósi reynslunnar af því hvað þetta var mikil vinna og álag sá ég ekki fram á að geta unnið við Gettu betur með náminu,“ segir Davíð Þór þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Hann viðurkennir að það sé pínulítill beygur í honum að fara að setjast á skólabekk eftir langa fjarveru en um leið ákaflega spennandi. „Ég þarf að fara dusta rykið af ritningalestrinum og grísku sem ég hef ekki haldið við síðan ég hætti.“ Davíð sagði skilið við guðfræðina á sínum tíma vegna anna í skemmtanabransanum en segir hugann hafa stefnt í guðfræðina aftur. „Ég hætti síður en svo vegna áhugaleysis. Ég stóð frammi fyrir tveimur valmöguleikum og ákvað að velja skemmtanabransann vegna þess að það var tækifæri sem mér átti ekki eftir að bjóðast aftur,“ útskýrir Davíð en bætir því við að kannski hafi dæmið snúist við. „Núna veit ég hvað þessi bransi gengur út á og guðfræðin er orðin að gæsinni sem mig langar til að grípa.“ Dómarinn á þrjátíu einingar eftir í B.A. prófið og býst við að klára þær á einum vetri. Hvað framhaldið verður vildi hann ekki tjá sig um og gaf ekkert út á hvort kirkjan yrði hans næsti vinnustaður. „Ég ætla bara að sjá hvernig þetta gengur enda eiga langtímaplön oft til að breytast. Ég er meira fyrir að skipuleggja stutt fram í tímann.“
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira