Tvö sveitarfélög ætla sér að kaupa Hitaveitu Suðurnesja 30. júní 2007 01:45
Reykjanesbær og Hafnarfjarðarbær ætla að nýta forkaupsrétt sinn á fimmtán prósenta hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja. Nær öruggt þykir að sveitarfélögin tvö kaupi einnig 28 prósenta hlut sjö annarra sveitarfélaga á Suðurnesjum og Suðurlandi sem fjárfestingarfélagið Geysir Green Energy samdi um kaup á í gær. Fyrirtækið hafði áður samið um kaup á fimmtán prósenta hlut ríkisins. Kaupin voru háð því að forkaupsréttur á hlutafénu yrði ekki nýttur. Aðkoma Geysis Green Energy að Hitaveitunni virðist því ekki lengur inni í myndinni. Gunnar Svavarsson, fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar í stjórn HS, segir ljóst að Hafnarfjarðarbær muni kaupa allt hlutafé í Hitaveitunni sem þeim stendur til boða. „Það eru allir að lýsa því yfir að þetta sé gott fjárfestingartækifæri. Við lítum á það þannig. Við höfum sterkt bakland og ég get ekki séð hvað gæti komið í veg fyrir að við nýtum okkur forkaupsrétt okkar á hlutafé ríkisins og sveitarfélaganna.“ Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir allar líkur á því að Reykjanesbær nýti forkaupsrétt sinn. „Hafnarfjarðarbær segist ætla að nýta forkaupsréttinn og það gerist aldrei þannig að þeir myndu einir nýta hann. Fyrst einhver ætlar að nýta forkaupsréttinn þá tökum við okkar hlut.“ Árni segir það ekki hafa verið hugmyndina hingað til að nýta forkaupsréttinn á 28 prósenta hlut sveitarfélaganna en ef svo færi þá yrði staða Reykjanesbæjar afar sterk. Fundur verður á mánudaginn í bæjarstjórn þar sem næstu skref verða ákveðin. Síðustu tvo sólarhringa hefur verið gríðarleg barátta um Hitaveituna. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins gerði Orkuveita Reykjavíkur (OR) tilboð í allt hlutafé fyrirtækisins fyrir utan hlut Reykjanesbæjar og leiddu fulltrúar Grindavíkurbæjar þær viðræður. Tilboð OR var á genginu 7,0 en Geysir Green Energy, sem áður hafði samið um fimmtán prósenta hlut ríkisins, svaraði því með tilboði upp á 7,1 sem sveitarfélögin gengu að í gær. Kaupverð 43 prósenta hlut ríkisins og sveitarfélaganna sjö er um 23 milljarðar króna.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Fleiri fréttir Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni Sjá meira