Scorsese með Laxness á náttborðinu 13. júní 2007 06:00 Hefur mikið dálæti á landi og þjóð og ekki síst bókmenntunum.
Bíófrömuðurinn Árni Samúelsson í Sambíóum var viðstaddur sérstaka frumsýningu heimildarmyndarinnar Shine a Light eftir Martin Scorsese í New York á mánudagskvöldinu. Þar fylgir leikstjórinn goðsagnakenndi rokkgoðunum í Rolling Stones eftir en allar helstu stórstjörnur Hollywood voru viðstaddar. Árna og eiginkonu hans, Guðnýju Björnsdóttir, gafst síðan færi á að hitta leikstjórann að máli. Og þar kom upp úr kafinu að Scorsese er ákaflega hrifinn af Íslandi. „Hann nefndi það að fyrra bragði að hann væri að lesa Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness,“ segir Árni og bætir því við að Scorsese hafi lýst yfir miklum áhuga á að koma til landsins og vera viðstaddur frumsýningu myndarinnar hér heima. „Hann kemur til Evrópu um það leyti sem myndin er frumsýnd og ég gaukaði því að honum að það væri hægur leikur að koma hérna við áður en hann héldi til stóru landanna,“ útskýrir Árni, sem sagðist nú ætla að róa að því öllum árum að láta þetta verða að veruleika. Shine a Light verður heimsfrumsýnd 21. september hér á landi og segir Árni að myndin eigi eftir að verða mikill smellur. Allir þekki Rolling Stones og þrátt fyrir að sveitarmeðlimir séu komnir á efri árin eigi þeir mikið inni. „Að sjá þá Mick Jagger og Keith Richards var eiginlega ótrúlegt,“ segir Árni en bætir því við að gítarleikarinn drykkfelldi steli eiginlega senunni. „Úthaldið hjá Jagger kom mér hins vegar í opna skjöldu. Hann hleypur alveg eins og brjálæðingur um sviðið og er í alveg ótrúlega góðu formi.“
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Fleiri fréttir Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Sjá meira