Lífið

Logi og Svanhildur kaupa einbýlishús á Dalvík

Um er að ræða lítið og sætt einbýlishús sem er falið af stórum trjám sem einkenna garðinn. 
Mynd/Halldór Ingi
Um er að ræða lítið og sætt einbýlishús sem er falið af stórum trjám sem einkenna garðinn. Mynd/Halldór Ingi

„Þetta er skemmtilegt hús með skemmtilega sögu. Sundlaugin er í næstu götu, skíðasvæðið er rétt fyrir ofan og á Dalvík er allt til alls. Okkur líður mjög vel hérna og viljum vera hér sem allra mest,“ segir sjónvarpskonan Svanhildur Hólm Valsdóttir, en hún og eiginmaður hennar Logi Bergmann Eiðsson hafa fest kaup á fallegu einbýlishúsi á besta stað á Dalvík, þaðan sem Svanhildur er ættuð og dvaldi löngum stundum í sinni æskutíð.

Um er að ræða sögulegt hús fyrir Svanhildi og fjölskyldu hennar en það var byggt árið 1953 af afasystur Svanhildar og eiginmanni hennar. Það má því segja að húsið sé aftur komið í eigu ættarinnar.

„Þetta verður meira heilsárshús en sumarhús því það koma tímabil þar sem við erum mikið fyrir norðan. Logi hefur einhver stórkostleg áform um að ganga í golfklúbb á Dalvík og spila old-boys fótbolta þannig að það er nóg um að vera. Við erum samt ekki flutt norður þar sem okkar atvinna er ennþá í höfuðborginni,“ segir Svanhildur.

Fiskidagurinn mikli er aðra helgina í ágúst og eins og siður er verður fiskisúpa á boðstólum í flestum heimahúsum fyrir gesti og gangandi. Og Svanhildur, sem að eigin sögn býr til býsna góða fiskisúpu, stefnir á að stilla upp tveimur logandi kyndlum fyrir framan sitt hús á Fiskideginum mikla.

„Þrátt fyrir að hafa alltaf ætlað hef ég aldrei komist á Fiskidaginn. En núna er ég staðráðin í að taka þátt í hátíðahöldunum,“ segir hún.

Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkur, er að vonum hæstaánægð með að fá þau hjón í bæinn. „Ég er afskaplega glöð. Svanhildur er jú líka ættuð héðan,“ segir Svanfríður um kaup Loga og Svanhildar á húsinu. „Ég fagna hverjum þeim sem flyst hingað. Það er næga atvinnu að fá og uppgangurinn er mikill. Ég er glöð að fá þessi heiðurshjón í bæinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.