Lífið

Reyka vodki fær góða dóma ytra

Reyka vodka
Reyka vodka

Reyka-vodki fær mjög góða dóma í umfjöllun á heimasíðu Monsters and Critics í Bandaríkjunum en sú síða sérhæfir sig í ýmiskonar alþjóðlegri gagnrýni og fréttaflutningi. Í stórum pistli sem birtist á síðunni er sagt að helsti styrkur Reyka-Vodka sé hversu „djarfur“ drykkurinn er, þrátt fyrir hans mjúku og fínu áferð.

Léttkryddað og vanillukeimað eftirbragðið sé einstakt auk þess sem ferskleikinn sem sé einkennandi fyrir framleiðslu vodkans finnist í bragði vodkans.

„Reykja er fyrsti spírinn sem nær að fanga eðli Íslands.

Vodkinn er eimaður með einstökum íslenskum eiginleikum, svo sem jarðhita, jöklavatni og hrauni,“ er haft eftir Kristmari Ólafssyni, sem titlaður er sem „yfirbruggari“ Reyka-vodkans.

Sagt er frá því í greininni að fjölskyldufyrirtækið William Grant & Sons eigi heiðurinn að því að kynna Reyka-Vodkann fyrir Bandaríkjamönnum.

Útskýrt er hvernig öll framleiðsla vodkans gangi út á að viðhalda ferskleika og uppruna hans og er farið ítarlega í allan framleiðsluferil hans. Vekur þar mesta athygli pistlahöfundar að vodkinn er í raun sjálfbær í framleiðslu, enda eimaður með jarðhita á Íslandi.

Einnig er minnst á auglýsingar Reykja-Vodka, sem þykar einkar frumlegar, fyndnar og vel heppnaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.