Páfi bað fyrir Íslendingum 10. júní 2007 14:00 Stefán Lárus fékk afhent trúnaðarbréf á föstudaginn var. Hér er hann páfa á hægri hönd, með Guðjóni Bragasyni, fastafulltrúa í Róm, Herði Páli syni sínum, Guðrún Bryndís Harðardóttur konu sinni og Stefáni Lárusi yngri.
Stefán Lárus Stefánsson, sendirherra Íslands hjá Evrópuráðinu, hitti Benedikt XVI páfa í Vatikaninu í byrjun mánaðarins þar sem hann fékk afhent trúnaðarbréf. Stefán Lárus, sem er einnig sendiherra Íslands hjá Evrópuráðinu, segir páfa hafa mikinn persónuleika. „Fólk skynjar strax að hann hefur mikinn persónuleika. Um leið og hann kom inn í salinn náði hann tökum á atburðinum, ef svo má segja," segir Stefán Lárus. Sendiherrann var ekki einn við athöfnina því kona hans og synir fylgdu með sem og Guðni Bragason, fastafulltrúi Íslands hjá landbúnaðar- og fiskistofnun Sameinuðu þjóðanna í Róm. Mikil viðhöfn fylgir afhendingu trúnaðarbréfa í Páfagarði. Íslendingarnir voru sóttir í lögreglufylgd og þau leidd inn í höll í Páfagarði, sem hýsir meðal annars íbúð páfa. „Á göngunum voru svissnesku lífverðirnir sem hafa séð um gæsluna í mörg hundruð ár. Þeir klæddust þessum skrautlegu búningum sem Michaelangelo er sagður hafa hannað," segir Stefán Lárus. Eftir athöfnina gaf páf sig á stutt spjall við Íslendingana og þar á meðal syni Stefáns sem eru fjórtán og nítján ára. „Þeim þótti mikið til þess koma að upplifa svona seremóníu og sjá hana kannski með öðrum augum en maður sjálfur. En það fór ekki framhjá þeim að við vorum að fara í gegnum seremóníu sem hefur verið endurtekin í þúsund ár og fannst mikið koma. Þeim þótti líka vænt um að hann gaf sér tíma til að heilsa þeim og skiptast á nokkrum orðum," segir Stefán Lárus. Mikil viðhöfn fylgir afhendingu trúnaðarbréfa í Páfagarði. Svissnesku lífverðir páfa sjá til þess að allt fari vel fram. Í ræðu sem páfi flutti við athöfnina sagði hann meðal annars að kristin trú hefði í yfir þúsund ár mótað íslenska menningu. Hann ræddi um friðargæslusveitir Íslendinga og minntist á nunnurnar í Hafnarfirði sem biðja fyrir velferð Íslendinga á degi hverjum. Að lokum bað hann fyrir guðsblessun allra Íslendinga. „Þrátt fyrir að allan þann umbúnað, glæsileika og þá miklu sögu sem er í Vatikaninu skynjar fólk samt friðsæld og ró. Og það var eiginlega sú tilfinning sem situr eftir í mér," segir Stefán Lárus, sendiherra í Vatikaninu.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira