Íslenskur bruggari í stórsókn 1. júní 2007 09:45 Guðmundur Mar Magnússon, bruggmeistari hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar, sagði allt þurfa að spila saman í bruggferlinu svo útkoman verði góð.
Bjórum Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hlotnuðust þrenn gullverðlaun á nýafstaðinni Monde selection bjórkeppni í Belgíu. Sem bruggmeistari Ölgerðarinnar er það Guðmundur Mar Magnússon sem á heiðurinn af stórsókninni í bjórbruggi. Á tveimur árum hafa bjórar Ölgerðarinnar hlotið níu verðlaun í alþjóðlegum keppnum, sem hlýtur að teljast ansi góður árangur. „Ja, það þykir mér að minnsta kosti,“ sagði Guðmundur hæversklega. Bjórarnir sem verðlaunaðir voru eru Gull, Lite og Premium, en þeir tveir síðastnefndu eru sköpunarverk Guðmundar. „Gullið er hins vegar frá forverum mínum komið,“ sagði Guðmundur. Gullbjórnum vinsæla var þó breytt dálítið fyrir um ári síðan, þegar Guðmundur prófaði að nota íslenskt bygg til bruggsins, en það er jafnframt notað í Premium. „Við erum náttúrulega alltaf að fínstilla þetta hjá okkur og alltaf að reyna að bæta okkur. Miðað við þetta virðumst við vera að þokast í rétta átt,“ sagði hann. Guðmundur vildi ekki kannast við að eiga allan heiður af verðlaununum og sagði bruggið mikið samspil. „Ég á minn part af þessu, en það þarf allt að smella saman til að þetta gangi upp. Við þurfum að vera með réttu uppskriftirnar og passa að þetta sé gert á réttan hátt, þar kem ég inn. Svo verðum við að velja hráefni af kostgæfni og tækjabúnaðurinn og starfsmennirnir skipta öllu máli. Þetta er mikið og flókið ferli,“ sagði hann.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira