Innlent

Sameignarákvæði í stjórnarskrá nái til allra náttúruauðlinda Íslands

Formenn og varaformenn stjórnarflokkanna kynna efni auðlindasamkomulagsins á blaðamannafundi í Alþingishúsinu í dag.
Formenn og varaformenn stjórnarflokkanna kynna efni auðlindasamkomulagsins á blaðamannafundi í Alþingishúsinu í dag.

Samkomulag hefur tekist milli stjórnarflokkanna um auðlindamálið. Geir H. Haarde, forsætisráðherra og Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og varaformenn flokkanna kynntu efni samkomulagsins á blaðamannafundi í ríkisstjórnarherberginu á Alþingi í dag. Samkomulagið gerir ráð fyrir, að formenn flokkanna flytji frumvarp til stjórnarskipunarlaga í eigin nafni, þar sem gert er ráð fyrir að ákvæðið um þjóðareign í lögum um fiskveiðar verði sett inn í stjórnarskrá og látið ná yfir allar náttúruauðlindir Íslands.

Geir Haarde sagði að ákvæðið úr fiskveiðilögunum yrði í raun hækkað í tign, tekið inn í stjórnarskrá og útvíkkað þannig að það gilti um allar náttúruauðlindir.

Í auðlindaákvæðinu í hinu nýja frumvarpi segir meðal annars, að náttúruauðlindir Íslands skulu vera þjóðareign þó þannig að gætt sé réttinda einstaklinga og lögaðila. Þá segir að nýta beri auðlindirnar til hagsbóta þjóðinni, eftir því sem nánar er ákveðið í lögum. Ekki skuli þetta vera því til fyrirstöðu, að einkaaðilum séu veittar heimildir til afnota eða hagnýtingar á þessum auðlindum samkvæmt lögum.

Geir las upp svohljóðandi sameiginlega yfirlýsingu formannanna:

"Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 23. maí 2003 segir að setja skuli ákvæði í stjórnarskrá þess efnis að auðlindir sjávar séu sameign íslensku þjóðarinnar. Í ljósi þess að stjórnarskrárnefnd sem starfað hefur undanfarin tvö ár náði ekki samkomulagi um slíkt ákvæði hafa formenn ríkisstjórnarflokkanna rætt sín á milli um lausn málsins. Hafa þeir orðið sammála um að flytja meðfylgjandi frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Þar kemur fram kjarninn í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en jafnframt er ákvæðið látið ná til allra náttúruauðlinda Íslands. Áréttað er að réttinda einstaklinga og lögaðila sem njóta eignarréttarverndar 72. gr. stjórnarskrárinnar skuli gætt. Því er lýst yfir að náttúruauðlindir Íslands skuli nýta til hagsbóta fyrir þjóðina alla, sem standi því samt ekki í vegi að veita megi einkaaðilum heimildir til afnota eða hagnýtingar á sameiginlegum auðlindum. Eðli málsins samkvæmt eru slíkar heimildir afturkræfar og fela ekki í sér fullnaðarafsal, þótt í þeim geti falist óbein eignarréttindi.

Ákvæðið tekur með gagnorðum hætti á flóknum lögfræðilegum álitaefnum. Þegar mælt hefur verið fyrir frumvarpinu mun það ganga til sérnefndar Alþingis um stjórnarskrármálefni til umfjöllunar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×