Íslenska áralaginu teflt gegn því færeyska 31. maí 2007 09:15 Ísleifur og Áhöfnin á Finsen Siglinglingaklúbburinn Siglunes hefur myndað róðrasveit og því ljóst að hart verður barist á sjómannadaginn. MYND/Hörður „
Við á Finsen landshöfðingja förum með hinu hefðbundna íslenska lagi,” segir siglingameistarinn Ísleifur Friðriksson. Mikill hiti og kapp er nú að færast í fyrirhugaða róðrakeppni sem að venju er haldin á sjómannadaginn, að þessu sinni þann 3. júní, og má búast við meiri keppni en oftast áður. Fréttablaðið hefur þegar greint frá því að hin sigursæla sveit færeyska saumaklúbbsins Stokkarnir ætlar ekki að gefa hlut sinn. Og JPV útgáfan ætlar að mæta til leiks með vaska róðrasveit. Og nú hefur Siglunes, Siglingaklúbburinn í Nauthólsvík, ákveðið að mynda lið og er ætlunin að veita Stokkunum maklega keppni. „Já, við ákváðum að taka til ára okkar,” segir Ísleifur en þess bera að geta að Ísleifur hefur einmitt þjálfað þau lið, ef undanskildum Stokkunum, enda þaulvanur siglingamaður. Hann neitar því þó alfarið að hafa kennt þeim skakkt áralag til að auka möguleika sína. Ísleifur segir mikla vakningu í kringum þessa fínu íþrótt og nú verði róðurinn hugsanlega vitrænni því Sjómannadagsráð hafi ákveðið að hafa einn keppnisbát á sjó yfir sumarið til að lið geti æft á slíkum. „Þær eru nokkrar tegundir af áralagi. Færeyingar hafa allt annað áralag en Íslendingar. Hafnleysurnar hérna þýddu að menn þurftu að leggjast meira á árarnar. Þetta er meiri handavinna í Færeyjum.” Sjómennirnir og frystihúsafólki hefur látið undir höfuð leggjast að taka þátt undanfarin ár en vakning er hins vegar á ólíklegustu stöðum öðrum. Lið Finsens skipa þau Jónína dela Rosa sem er formaður, í austurrúmi sitja þeir Óttar Hrafnkelsson og Kjartan Iversen, á miðþóftinni Kolbrún Vaka Helgadóttir og Jóhanna Klara Stefánsdóttir og í andófi eru Ísleifur Friðriksson og Freysteinn Oddsson.
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Sjá meira