Kærasti Lindsay í kókaíni 31. maí 2007 07:30 Calum Best var myndaður í félagsskap vændiskvenna þar sem hann neytti kókaíns. MYND/Getty
Kvennabósinn Calum Best er háður kókaíni og stundar hópkynlíf með vændiskonum. Þetta kom fram í breska dagblaðinu The Sun í gær en blaðið birti myndir af Best í félagsskap vændiskvenna þar sem hann neytti kókaíns. Best, sem er sonur knattspyrnuhetjunnar George Best heitins, komst nýverið í fréttirnar fyrir að slá sér upp með leikkonunni Lindsay Lohan. „Pabbi hans var vissulega fyllibytta og kvennabósi en Calum er verri, hann er kominn alveg á botninn,“ sagði vinur hans í samtali við blaðið. Þrátt fyrir að kærastan Lindsay Lohan sé ekki barnanna best þegar kemur að skemmtanalífinu hafði Calum haldið líferni sínu leyndu fyrir henni. Lindsay var sem kunnugt er handtekin með kókaín í fórum sínum um liðna helgi. Hún mun nú hafa innritað sig í meðferð í annað skipti á skömmum tíma. „Ég hef hegðað mér heimskulega og sé eftir öllu,“ sagði Calum í viðtali við The Sun. Þá hafði hann ekki enn sagt Lindsay frá leyndarmálum sínum. Breska dagblaðið hefur undir höndum myndbandsupptöku af Calum þar sem hann er með tveimur vændiskonum á hótelherbergi. Á myndbandinu sést hann í ástarleikjum með vændiskonunum á milli þess sem hann tekur kókaín í nefið. Calum lýsti því yfir eftir að hann kynntist Lindsay Lohan að hann væri tilbúinn að láta af villtum lífsstíl sínum og helga sig sambandi þeirra. Ólíklegt verður að teljast að af því verði nú.
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Sjá meira