Heimsótti þriggja ára krabbameinssjúkan aðdáanda sinn 26. maí 2007 15:00 Sean Callahan þjáist af krabbameini en heimsókn Sportacusar gaf honum mikið í erfiðri baráttu sinni við sjúkdóminn. „
Við höfum fengið ansi mikið af svona tölvupóstum þar sem börn hafa hellt sér af fullum krafti útí Latabæjar-lífstílinn," segir Magnús Scheving. Í helgarútgáfu breska blaðsins Sunday People var sagt frá hinum tveggja ára gamla Cody McCaffrey sem slapp frá leiksskólanum sínum og lagði af stað í mikla hættuför heim til sín. Móðir drengsins lýsti því síðan yfir að hún væri viss um að Cody hefði þarna verið að herma eftir hetjunni sinni, sjálfum Sportacus eða Íþróttaálfinum úr Latabæ. „Hann elskar ekki bara Latabæ, Latibær er lífið sjálft," sagði móðirin. Þótt Magnús væri ekkert sérstaklega að mæla því bót að börn reyndu að sleppa úr höndum leiksskólakennara þá sýndu svona dæmisögur að verkefnið væri að ganga fullkomlega upp-að fá börn til hreyfa sig. „Ég hef reyndar hitt foreldra sem hafa sagt mér frá marblettum krakkanna sinna eftir að þau hafa hoppað niður af borðum og ég held að það sé ekki hægt að koma í veg fyrir slíkt þegar litla athafnafólkið fer af stað." Takk Sportacus Foreldrar Sean sendu Magnúsi langt bréf sem hann geymir mjög vel en þar þakka þau honum innilega fyrir heimsóknina Og Latibær er ekki bara einhver sjónvarpsþáttur á skjánum með leiknum persónum heldur hefur Magnús verið á fleygiferð um heiminn í þeim erindagjörðum að hvetja smáfólkið enn frekar til dáða. Og stundum geta slíkar heimsóknir verið bæði hjartnæmar og erfiðar. Magnús fór meðal annars til Bandaríkjanna nýverið og heimsótti þar ungan krabbameinssjúkan aðdáanda sinn, hinn þriggja ára Sean Callahan, sem lifir og hrærist í sjónvarpsþáttunum. Íþróttaálfurinn. Þrátt fyrir að íþróttahetjan sé flestum bara kunn á sjónvarpsskjánum þá er hún sprellilifandi í raunveruleikanum líka. „Það var hringt í mig og ég var beðinn um að koma. Og þessi ungi strákur vildi bara fá eitt og það var „Sports Candy" eða epli," segir Magnús sem segist þarna hafa gert sér grein fyrir því hversu mikið Latabæjar-þættirnir geti gefið krökkum. „Við áttum saman mjög ánægjulega stund," útskýrir Magnús sem skömmu síðar fékk langt og innilegt þakkarbréf frá foreldrum stráksins sem hann geymir vel, sem og mynd af Sean.
Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Sjá meira