Eyþór senuþjófur í Cannes 26. maí 2007 11:00 Eyþór lék sem kunnugt er eitt af aðalhlutverkunum í hryllingsmyndinni Hostel og er einn af framleiðendum framhaldsmyndarinnar. Með þeim á myndinni er lögfræðingurinn Carlos Goodman.
Athafnamaðurinn Eyþór Guðjónsson hefur látið lítið fyrir sér fara að undanförnu eftir að hafa verið í sviðljósinu í kringum Hostel-hryllingsmyndina sem sló eftirminnilega í gegn. Hann dustaði hins vegar rykið af smókinginum og stjörnubrosinu þegar kvikmyndaleikstjórarnir Eli Roth og Quentin Tarantino buðu honum að vera viðstaddur sérstaka hátíðarsýningu nýjustu kvikmyndar Tarantino, Death Proof. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu hefur Tarantino mikinn hug á því að koma til landsins og vera viðstaddur frumsýningu myndarinnar. Og ef marka má orð Eyþórs eru meiri líkur en minni að af því verði. „Við ætlum jafnvel að reyna að fá einhverja af leikurunum með," segir Eyþór. Eyþór er eldri en tvævetra á rauða dreglinum og kenndi aðalleikkonum Death Proof nokkur dreglatrix. Athafnamaðurinn var á leiðinni á fasteignaráðstefnu í París þegar kallið kom frá Cannes og því var hægur leikur fyrir Eyþór að smella sér með lest til Frönsku rivíerunnar. Og hann var ekki fyrr kominn að gylltum ströndum Miðjarðarhafsins að lætin byrjuðu með tilheyrandi stjörnufans. „Ég fór í kvöldverð í boði Budweiser ásamt Weinstein-bræðrunum um borð í skútu sem þeir voru með í Cannes," segir Eyþór. Meðal þeirra sem heiðruðu framleiðendurnar voru Tarantino sjálfur og Kurt Russell, aðalleikari Death Proof, sem mætti með eiginkonu sína, Goldie Hawn, uppá arminn. „Að honum loknum komu bílar frá kvikmyndahátíðinni og keyrðu okkur uppí höllina þar sem myndin var sýnd," útskýrir Eyþór sem reyndist svo sannarlega haukur í horni því aðalleikkonur myndarinnar voru á taugum yfir öllum þeim ljósmyndurum sem biðu þeirra fyrir utan bílinn. „Ég kenndi þeim bara nokkur dreglatrix og þá varð þetta allt í lagi," segir Eyþór en haft var á orði að íslenski sjarmörinn ætti þess eflaust kost að verða næsti James Bond þegar Daniel Craig legði byssuna á hilluna.
Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Sjá meira