Innlent

Forsætisráðuneytið segir Þróunarfélagið fara að reglum

Vilhelm

Forsætisráðuneytið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu undanfarinna daga um Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar og hvernig staðið hefur verið að sölu fasteigna á gamla varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Í yfirlýsingunni kemur fram að það sé mat ráðuneytisins að Þróunarfélagið hafi unnið eftir settum lögum og þjónustusamningi við ráðuneytið þegar ákveðið var hverjum skildi selja fasteignirnar.

Þá segir að forsætisráðuneytið eigi ekki von á öðru en að reglubundin yfirferð Ríkisendurskoðunar sem nú stendur yfir muni leiða það í ljós. „Vonir standa til þess að félagið fái starfsfrið til að sinna áfram því mikla uppbyggingarstarfi sem hafið er á fyrrverandi varnarsvæði í nánu samstarfi við heimamenn," segir að lokum í yfirlýsingunni sem lesa má í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×