Færri börn fá nafn við skírn í þjóðkirkju 22. nóvember 2007 14:43
Börnum sem fengu nafn við skírn í þjóðkirkju fækkaði um þrettán prósentustig á tímabilinu 1996-2005. Þetta kemur fram í vefriti dómsmálaráðuneytisins. Þar segir að árið 1996 hafi 89 prósent barna fengið nafn við skírn í þjóðkirkju en 76 prósent fengu það árið 2005. Á sama tímabili jókst hlutfall þeirra sem fengu nafn með tilkynningu til Þjóðskrár um tæp 10 prósentustig, úr nærri sjö prósentum í tæp 17 prósent. Hér á landi eru þrjár leiðir til að gefa barni nafn: við skírn í þjóðkirkju, skírn eða nafngjöf hjá skráðu trúfélagi eða með tilkynningu til Þjóðskrár. Af tæplega 42.000 börnum sem fengu nafn á ofangreindu tíu ára tímabili fengu að meðaltali rúm 83 prósent nafn við skírn í þjóðkirkju, ellefu prósent með því að send var inn tilkynning þar um til Þjóðskrár og 5,7 prósent með skírn eða nafngjöf í skráðu trúfélagi. Fram kemur í vefritinu að forsjármönnum barns sé skylt að gefa því nafn innan sex mánaða frá fæðingu þess. Langstærstur hluti barnanna, nærri 97 prósent, hafði fengið skráð nafn í þjóðskrá innan sex mánaða frá fæðingu, þar af fékk um þriðjungur barnanna nafn á öðrum mánuði.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Sjá meira