Samþykkt að leggjast gegn nektardansi í borginni 22. nóvember 2007 14:06
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag umsögn sem legið hefur fyrir í nokkrar vikur um að veitingahúsunum Club Óðal, Vegas og Bóhem verði ekki veitt leyfi til nektardans. Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum meirihlutans en þrír borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.Fram kemur í umsögninni að sérfræðingar í kynferðisofbeldi hafi sýnt fram á að í skjóli nektardansstaða þrífist gjarnan vændi auk þess sem erfitt sé að ganga úr skugga um hvort þær stúlkur sem þar starfi séu til þess neyddar eða ekki. Vísað er í greinargerð rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum við HÍ venga þessa. Segir enn fremur að borgaryfirvöld hafi tekið þessar ábendingar alvarlega og vilji sporna gegn rekstri nektarstaða í borginni enda séu þar tvímælalaust almannahagsmunir í húfi. Borgarráð leggst hins vegar ekki gegn almennu rekstraleyfi fyrir veitingastaðina.Samkvæmt nýjum lögum um veitingastaði og skemmtanahald þarf sértaka undanþágu til þess að heimila nektardans á veitingastöðum og þarf veitingastaðurinn jákvæða umsögn frá öllum umsagnaraðilum. Borgarráð samþykkti umsögn í lok ágúst þar sem ekki var lagst gegn því að umrædd veitingahús fengju rekstrarleyfi enda væri staðsetning þeirra og afgreiðslutími innan marka reglna borgarinnar. Í umsögnunum var þó vísað til nýlegrar umsagnar lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins um veitingastaðinn Goldfinger í Kópavogi og því beint til hans að hafna einnig heimild til að sýna nektardans í atvinnuskyni á umræddum veitingastöðum.Hins vegar þótti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins umsögnin ekki nógu skýr. Önnur umsögn var því tekin fyrir á fundi borgarráðs 25. október. Þar var lagst gegn leyfi til staðanna til nektardans. Afgreiðslu tillögunnar var hins vegar frestað vegna andmælaréttar eigenda veitingastaðanna. Eftir að hafa farið yfir andmælin samþykkti borgarráð í dag að heimila ekki nektardans á stöðunum þremur.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira