Fíkniefnabrotum fjölgaði um 25% á milli ára Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. nóvember 2007 12:58 Rannveig Þórisdóttir er einn höfunda skýrslunnar.
Árið 2006 voru 9.666 hegningarlagabrot tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er töluverð aukning frá árinu á undan þegar 7.742 brot voru skráð. Þetta kemur fram í skýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem unnin var af Rannveigu Þórisdóttur og Benjamín Gíslasyni. Árið 2006 voru 828 ofbeldisbrot kærð og er það um 16 prósent aukning frá árinu 2005. Mest aukning var í minniháttar líkamsárásum eða um 27 prósent. Hins vegar fækkaði meiriháttar og stórfelldum líkamsárásum um 42 prósent. Líkamsárásum, líkamsmeiðingum af gáleysi fækkaði einnig um 78 prósent.Fíkniefnabrotum fjölgarHeildarfjöldi fíkniefnabrota jókst talsvert á milli áranna 2005 og 2006, eða úr 1.111 fíkniefnabrotum árið 2005 í 1.398 brot árið 2006. Þetta er aukning um 25 prósent á milli ára. Mesta aukningin var í vörslu og meðferð ávana- og fíkniefna en þeim fjölgaði úr 958 málum árið 2005 í 1.228 mál árið 2006 sem er 28 prósent aukning á milli ára. Auðgunarbrotum fjölgarFjöldi auðgunarbrota jókst um rúm 14 prósent á milli áranna 2005 og 2006. Mest var aukning í þjófnaðarmálum og þá sérstaklega þjófnaði á reiðhjólum sem jókst um 127 prósent á milli ára. Vera má að breytingar í skráningu skýri þetta en árið 2005 var byrjað að flokka þjófnaðarbrot nánar eftir því hverju var stolið. Innbrotum fjölgaði einnig nokkuð milli áranna 2005 og 2006 og alls voru kærð 1.916 innbrot á höfuðborgarsvæðinu árið 2006 sem er aukning um tæp 9 prósent á milli ára. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru öruggirRannsóknin bendir til þess að meirihluti íbúa á höfuðborgarsvæðinu, eða rúmlega 90 prósent, eru mjög eða frekar öruggir þegar þeir eru á gangi í hverfum sínum að næturlagi. Konur eru hræddari við að vera einar á gangi en karlar og er það í takt við niðurstöður eldri rannsókna. Íbúar Grafarvogs telja sig einna öruggasta á gangi í sínu hverfi en íbúar Breiðholts og Miðborgar telja sig hins vegar einna óöruggasta á gangi eftir að myrkur er skollið á. Unnt er að hlaða niður skýrslu lögreglunnar ef smellt er á hlekkinn hér að neðan. Skýrslan er á pdf sniði.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Sjá meira