Engin stórvægileg álitaefni við erfðamengisgreiningu 20. september 2007 12:33
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sér engin stórvægileg siðferðileg álitaefni við það þótt almenningi verðið boðið upp á að kaupa greiningu á erfðamengi sínu. Fólk leiti enda slíkra upplýsinga um sjálft sig af fúsum og frjálsum vilja. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld hefur Íslensk erfðagreining ákveðið að bjóða almenningi upp á greiningu á erfðamengi sínu og fá þannig meðal annars upplýsingar um áhættuþætti sjúkdóma. Aðspurður hvort þetta vekti ekki upp siðferðilegra spurningar sagði Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, að það sem væri gott við þetta væri að þetta yrði ekki gert við neinn annan en þann sem bæði um þetta og væri reiðubúinn að borga fyrir þetta töluvert fé. Þarna væri um að ræða fólk sem leitaði upplýsinga um sjálft sig af fúsum og frjálsum vilja þannig að það væri vafasamt að líta svo á að í því fælust mjög stórar spurningar. Aðspurður hvort þetta gæti verið til ills sagði Kári að engin þekking væri í sjálfu sér til ills. Þekkingu mætti hins vegar nota til góðs og ills og hann væri alveg viss um að sú þekking sem kæmi úr þessu væri ekkert öðruvísi, menn gætu nýtt hana til góðs og ills. Það væri því spurning hvernig einstaklingar héldu utan um þessar upplýsingar þegar þeir væru búnir að fá þær.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Vilhjálmur verður bæjarstjóri Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira