Innlent

Fordæma lokun mjólkurstöðvarinnar á Egilsstöðum

Frá Egilsstöðum
Frá Egilsstöðum MYND/365

Lokun mjólkurstöðvarinnar á Egilsstöðum er enn ein aðför að hefðbundinni búsetu og atvinnulífi dreifbýlisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá AFL starfgreinafélagi. Félagið fordæmir lokunina og skorar á Mjólkurbú Flóamanna að endurskoða ákvörðunina.

Í yfirlýsingunni kemur fram að þrátt fyrir að lokunin sé sögð vera gerð í nafni hagræðingar liggi ekki fyrir í hverju sú hagræðing sé fólgin. Svo virðist sem fyrst hafi verið ákveðið að loka og svo reiknuð hagræðing inn í ákvörðunina að mati starfsgreinafélagsins.

Ennfremur segir í yfirlýsingunni að reynslan hafi sýnt að þar sem mjólkurbúum sé lokað fylgir fljótlega minnkandi framleiðsla. Þannig hafi þessi ákvörðun í för með sér fyrirsjáanlega stórfellda byggðaröskun á Austurlandi.

Félagið skorar á Mjólkurbú Flóamanna að endurskoða ákvörðun sína og krefst þess að áður en ákvörðunin sé tekin verði lagður fram grundaður rökstuðningur fyrir því að ráðast að byggðinni og lífskjörum fólks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×