Segir nefndina hafa staðið sig í stykkinu 20. september 2007 10:58 Alfreð Þorsteinsson. „
Ja, bæði og," segir Alfreð Þorsteinsson aðspurður hvort ákvörðun heilbrigðisráðherra um að leggja niður framkvæmdanefnd nýs háskólasjúkrahús hafi komið sér á óvart. „Það er auðvitað kominn nýr ráðherra í heilbrigðisráðuneytið og hann hefur sjálfsagt ákveðnar skoðanir á þessari framkvæmd. Ég held að hann verði að skýra þetta sjálfur út." Alfreð segir að ekki sé hægt að saka nefndina um að hafa ekki unnið sitt verk. „Verkið gengur vel og afar gott samstarf hefur verið með nefndarmönnum og starfsfólki spítalans. Þá höfum við einnig átt mjög gott samstarf við borgaryfirvöld," segir Alfreð. „Það getur því ekki verið ástæða að nefndin hafi ekki staðið sig í stykkinu. Þá hefur starfið innan nefndarinnar einnig gengið vel og ég hef átt mjög gott samstarf við nefndarmenn ekki síst Ingu Jónu Þórðardóttur, varaformann." Aðspurður hvort hætta sé á því að bygging spítalans tefjist af þessum völdum segir Alfreð ákveðna hættu á því. „Það segir sig sjálft að það verði einhverjar tafir en vonandi ekki miklar." Alfreð segir afar mikilvægt að verkinu ljúki á áætlun. Starf hans í nefndinni hafi sannfært hann um að Íslendingar séu komnir töluvert á eftir nágrannalöndum hvað varðar aðbúnað á spítölum. Alfreð segist ekki óttast atvinnuleysi en hann var í fullu starfi sem formaður nefndarinnar og framkvæmdastjóri verksins. „Ég er með margt í spilunum og með næg verkefni," segir hann. Hann segist eiga eftir að ræða um starfslok sín við ráðuneytið og hvort einhverskonar starfslokasamningur verði gerður. „Ég er ekki farinn að hugsa út í þau mál að svo stöddu," segir Alfreð Þorsteinsson, fráfarandi formaður framkvæmdanefndar um byggingu nýs háskólasjúkrahúss. Áætlað er að verklegar framkvæmdir við sjúkrahúsið hefjist árið 2009.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira