Íslenskt fyrirtæki stjórnar orkusparnaði í Evrópu Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 1. september 2007 18:57
Íslendingar eru þekktari fyrir að sóa en spara. Þrátt fyrir það stjórnar íslenskt fyrirtæki orkusparnaði víða í Evrópu frá húsakynnum sínum í Mosfellsbæ. Fyrirtækið DomesticSoft í Mosfellsbæ sérhæfir sig í orkusparnaði og sér meðal annars um götulýsingu og orkunotkun á nokkrum stöðum í Evrópu. Meðal annars götulýsingu í hluta Amsterdam í Hollandi, Luxemborg og Berlín. Hugbúnaðurinn er hannaður af fyrirtækinu en vélbúnaður í samvinnu við erlenda aðila. Raforkunotkun er stjórnað frá tölvum á Íslandi í gegnum internetið. Þannig hefur hugbúnaðurinn samskipti við ljósastaura og vélbúnað bygginga og stýrir þannig notkuninni. Þröstur Jónsson framkvæmdastjóri DomesticSoft segir lýsingu vera góða við hringtorg þar sem slysahætta sé fyrir hendi en deyfist síðan. Þá sé góð lýsing um helgar við bari þar sem áflogahætta er. Raforka er dýrari í flestum Evrópulöndum en á Íslandi. Sums staðar er orkuskortur að verða áberandi og ekki auðvelt að auka framleiðslu. Þess vegna skiptir afar miklu máli að þessum verðmætum sé ekki sóað. Allt að 30 prósenta orkusparnaður hefur náðst í verkefnum fyrirtækisins, en frekar algengt er að í byggingum sé verið að kynda á sama tíma og loftkæling er í gangi. Í Asker í Noregi þar sem fyrirtækið sér um orkustýringu á öllum opinberum fyrirtækjum og skólum hefur orkunotkun dregist saman um átján prósent. Þá er fyrirtækið með verkefni í Bretlandi og á Írlandi. Þröstur segir að nú sé í gangi tilraunaverkefni með götulýsingu hér á landi, en þegar hann kynnti hugmyndir um orkusparnað fyrir nokkrum árum hafi þær ekki fengið góðan hljómgrunn. Íslendingar séu þekktir fyrir að sóa frekar en spara, en tækifæri til orkusparnaðar liggi í götulýsingum.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira