Frá Guðrúnu til Aþenu 1. apríl 2007 11:15 Því má velta fyrir sér hvort rekja megi vinsældir nafnanna Andri Snær til rithöfundsins sjálfs en samvkæmt Hagstofu bera flestir í yngsti aldurshópurinn það tvínefni.
Á heildina litið eru Jón og Guðrún þau nöfn sem enn þann dag í dag eru algengust í þjóðskrá Íslendinga. Séu aldurshóparnir skoðaðir má þó sjá að allra síðustu árin hafa straumar og stefnur í nafngiftum breyst mikið. Langt fram á 20. öldina var topp tíu listinn yfir vinsælustu nöfnin nokkurn veginn sá sami og hann hafði verið árið 1700 þar sem sígild nöfn á borð við Guðmundur, Bjarni, Sigríður, Margrét og Ólafur trónuðu í efstu sætunum. Upp úr 1950 fór það smám saman að breytast og feður og mæður landsins urðu sífellt djarfari og nýjungagjarnari í nafngiftum sínum. Í dag er líklegra að barnið sem þú sérð leika sér í sandkassanum heiti eftir stórborginni þar sem það var getið nú en eftir ömmum sínum og öfum. Nú eða teiknimyndahetja á borð við Ariel hafi miklu frekar heillað foreldrana en nafnið á langömmu-eða afa. Líkt og Íslendingar ganga í gegnum mismunandi hárskeið eru foreldrar landsins sömuleiðis í gíslingu tískunnar hvað mannanöfn snertir. Án þess þó að gera sér kannski grein fyrir því fyrr en yfirlit yfir algengustu mannanöfn er tekið.Burkni kom og fórEva María er vinsælasta tvínefnið sem gefið er börnum undanfarin ár.Hvað karlmannsnöfn snertir hefur Jóninn ráðið ríkjum í hundruð ára og gerir það enn. Að vísu er tíðin önnur þegar fimmti hver íslenskur karlmaður bar nafnið en í dag eru það aðeins 2% karlmanna sem bera nafnið svo að fjöldi þeirra nafna sem eru í umferð er mun meiri en áður. Á áttunda áratugnum fylltist þjóðskrá af nýjum nöfnum enda hipparnir, með opna og víðsýna huga, hættir að reykja hass og farnir að eiga börn og buru. Í kjölfarið fylgdi holskefla nýrra nafna. Andri, sem ekki hafði sést á topplistanum komst í efri sætin sem og nafnið Daníel. Eitthvað hefur náttúran og dýralífið verið hippunum hugleikið því Kári, Arnar og Örn urðu næstvinsælustu nöfnin á þessum árum, Arnar sem fyrra nafn og Örn sem seinna. Davíð og Sindri tóku slaginn við toppana á listanum og náðu að hassla sér völl sem vinsælustu nöfnin.Goðafræðin kom líka sterk inn með blómabörnunum sem skírðu afkvæmi sín eftir fuglum og Þór og Freyr urðu það heitasta heitt, sérstaklega sem seinni nöfn. Nöfn hafa líka komið og farið. Burkni var til að mynda mjög móðins í kringum áttunda áratuginn en í dag eru nýskírð börn fæst kennd við þann gróður.Arons-æðiðhvað á barnið að heita? Alexandra, Tristan, Adólf, Amos eða Bambi?Nokkrum árum síðar var ný kynslóð foreldra tekin við og um miðjan 10. áratuginn mátti sjá þess glögg merki að svokölluð A-nöfn rúluðu í þjóðskrá. Alexander byrjaði hægt og bítandi að skríða upp listann og í dag ber afar stór hluti yngstu kynslóðinnar nafnið. Ekkert jafnast þó á við það mikla Arons-æði sem greip um sig meðal nýbakaðra foreldra og eins undarlegt og óútskýranlegt og það kann að virðast er það í öðru sæti yfir algengasta karlmannsnafn á leikskólum landsins.Sérlega vinsælt er að splæsa öðru nafni með og Aron Ingi og Aron Máni eru tvínefnasmellir síðustu ára. Enda eru tvínefni mun vinsælla í dag en áður þar sem hér á öldum áður heyrði það til undantekninga ef einstaklingur báru tvínefni. Það fór ekki að breytast fyrr en um miðjan sjöunda áratuginn og í dag bera 80% barna á aldrinum 0-4 ára tvö nöfn. Allra vinsælasta tvínefni dagsins er Andri Snær en Sindri Snær kemur þar rétt á eftir.Af gömlu slögurunum eru nöfnin Sigurður og Jón þau einu sem enn eru á topp 10 og Guðmundar-nafnið á alltaf sinn fasta aðdáendahóp.80"stjörnurnar Sara og Sandragyðinganafnið aron Nöfn úr gamla testamentinu njóta mikilla vinsælda um þessar mundir.Guðrún var allra vinsælsta kvenmannsnafnið samkvæmt manntali árið 1703 og er enn þann dag í dag drottning þjóðskrár. Þó er af sem áður var þegar 17% kvenna báru nafnið en í dag eru það aðeins um 2% kvenna sem heita Guðrún. Og ef þær hétu ekki það hétu þær Sigríður, Margrét, Ingibjörg, Kristín, Helga, Þuríður, Guðríður, Guðný og Þórunn. Um miðja 19. öld er nafnið Guðrún enn algengast en hástökkvarinn á þeim tíma er þó nafnið Anna sem kemur sterkt inn og síðustu fjögur árin hefur verið algengast að stúlkubörn séu skírð því nafni. Klassíkin ræður þó áfram ríkjum og segja má að breytingarnar verði fyrst áþreifanlegar upp úr 1970. Sandra og Sara dúkka upp sem vinsæl nöfn og verða tískunöfn þessara ára og við þær sem ekki vorum skírðar þeim nöfnum vildum innst inni allar heita Sara eða Sandra. Hildur kemur sterk inn og flýgur í áttunda sætið í kringum 9. áratuginn en hafði tuttugu árum áður ekki einu sinni verið meðal þeirra nafna sem voru í fyrstu fimmtíu sætunum. Íris er blóm blómanna og Íris Ósk varð mjög vinsælt tvínefni á 9. áratugnum. Rakel og Sif var líka mjög í anda þess tíma og margar frænkur og systur báru nafnið Karen. Með tilkomu mikilla tvínefna-vinsælda komu nöfnin Rut, Ýr, Dögg, Lilja, Rún og Björk í nafnapartíið sem seinni nöfn. A-nöfn vinsælSíðustu árin hefur allt verið vitlaust á nafnamarkaðinum og ný og ný nöfn líta dagsins ljós á degi hverjum. Af vinsælustu kvenmannsnöfnum allra síðustu ára má nefna Freyja, Birta og Telma. Guðrún er komin í fjórða sætið og Rakel og Sara eru enn mjög vinsæl. Ný nöfn skjótast upp vinsældarlistana og þar má sjá Aþenu, Magðalenu, Alexöndru, Natalíu, Anítu og Emblu mjög ofarlega. Hvað seinni nöfn varðar þykja nöfnin Sól, Eir, Marín, Ösp, Líf og Mist greinilega mjög smart og Ósk lifir góðu lífi enn þá. Í báðum flokkum, karla og kvenna, eru Alexander og Alexandra "hittarar" síðustu ára. n
Mest lesið Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið Leikkonan Margrét Helga Jóhannesdóttir er látin Lífið Hipsumhaps rýfur þögnina Tónlist Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Bíó og sjónvarp Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Lífið Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Lífið Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Fleiri fréttir Leikkonan Margrét Helga Jóhannesdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Sjá meira
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið
Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Lífið