Skemmtu sér um borð í snekkju Romans Abramovich 21. júlí 2007 02:45
Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson fóru ásamt unnustum sínum í heimsókn til góðvinar síns Eiðs Smára Guðjohnsen og eiginkonu hans Ragnhildar Sveinsdóttur á dögunum. Knattspyrnukappinn er nú að nýta síðustu dagana í sumarfríinu áður en kallað verður til æfinga hjá stórliði Barcelona og naut lífsins með góðvinum sínum. Hersingin staldraði stutt við í höfuðborg Katalóníu og hélt í siglingu um höfin blá á glæsilegri snekkju. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var ekki um að ræða neitt venjulegt bátskrifli heldur snekkja í eigu sjálfs Romans Abramovich, rússneska auðjöfursins og fyrrum yfirmanns Eiðs hjá Chelsea. Nutu vinirnir lífsins lystisemda um borð en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var allt starfsfólk snekkjunnar um borð og þjónustaði Íslendingana eftir bestu getu. Ekki fékkst gefið upp hvert ferðinni var nákvæmlega haldið en þeir Auðunn og Sverrir komu til landsins um síðustu helgi.„Ég vil ekkert tjá mig um þetta mál. Núna er ég bara í langþráðu sumarfríi og er að æfa sveifluna á golfvellinum," segir Auðunn Blöndal, aðspurður um ferðina. Í sama streng tók Sverrir Þór Sverrison, hann vildi ekkert láta hafa eftir sér í samtali við blaðið en grínarinn góðkunni undirbýr nú barnaefni fyrir Stöð 2 af fullum krafti ásamt Vilhelm Antoni Jónssyni, Villa Naglbít.Eiður Smári og Ragnhildur hafa þó greinilega skipulagt hið stutta sumarfrí atvinnumannsins vel en þau dvöldu hér á landi um tíma og héldu meðal annars óvænt upp á þrítugsafmæli Ragnheiðar með pompi og prakt. Nú stendur hins vegar til að stjörnurnar þyrpist á Camp Nou til æfinga þar sem Eiður berst um byrjunarliðssæti í Barcelona við bestu knattspyrnukappa heims.
Mest lesið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Sjá meira