Heilbrigðisráðherra gagnrýndur fyrir að styðja áfengisfrumvarpið 30. október 2007 14:12 Guðlaugur Þór Þórðarson.
Þingmaður Vinstri grænna, Björn Valur Gíslason, fór hörðum orðum um Guðlaug Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í umræðum um störf þingsins. Hann sagði að afstaða ráðherrans til frumvarps, sem á að leyfa einkaaðilum að selja léttvín, veki upp spurningar um hvort ráðherrann sé hæfur til að gegna embætti sínu. Björn Valur gagnrýndi Guðlaug harðlega og sagði stuðning heilbrigðisráðherrans koma á óvart þar sem stofnanir sem heyra undir hann hafa þegar lýst andstöðu sinni við frumvarpið. Þingmaðurinn fullyrti að ráðherrann hafi með þessari afstöðu sinni ráðist af hörku gegn öllum þeim sem varað hafa við frumvarpinu. Þar á meðal væru stofnanir sem heyri undir heilbrigðisráðherra eins og Landlækni og Lýðheilsustöð. Hann krafðist þess að fá svör við því hvort Guðlaugur njóti trausts ríkisstjórnarinnar í ljósi þessarar afstöðu sinnar. Guðlaugur Þór sagði sérstakt að koma í ræðustól á eftir þingmanni VG í ljósi þeirra stóru orða sem hann lét falla. Hann sagði eðlilegt að menn hefðu mismunandi skoðanir á málinu. Það væri hins vegar enginn fótur fyrir þeim ásökunum að hann hafi ráðist af hörku að þeim sem talað hafi gegn frumvarpinu. Sigurður Kári Kristjánsson, fyrsti flutningsmaður umrædds frumvarps, kvaddi sér einnig hljóðs og hann lofaði Guðlaug Þór fyrir að skipta ekki skoðun þótt hann væri orðinn heilbrigðisráðherra. Sigurður benti einnig á þá staðreynd að Guðlaugur Þór hafi flutt sama frumvarp á fyrri þingum og því væri afstaða ráðherrans sönnun á því að hann sýni skoðunum sínum og flokks síns tilhlýðilega virðingu.
Mest lesið Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Innlent Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs Innlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Eldur í íbúð við Snorrabraut Innlent Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Innlent Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Erlent Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Erlent Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Vill finna bróður sinn „Þessar fréttir ollu mér og fleirum vanlíðan“ Bergþór með brjósklos og blæs á slúður Virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar endurnýjað Svandís stígur til hliðar Sjá meira