Steingrímur í kosningavímu í Köben 13. nóvember 2007 21:10 Steingrímur J Sigfússon á kosningavöku Vinstri Grænna í síðustu kosningum hér heima. "
Það er rosaleg stemmning hérna og formaðurinn var að klára ræðuna sína. Hann var að vonum hylltur og tekið sem þjóðhetju," segir Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna sem staddur var í Pumpehuset í miðborg Danmerkur á kosningavöku Sósíalíska Þjóðarflokksins. Flokkurinn er systurflokkur Vinstri grænna og var Steingrímur greinilega mjög ánægður með gengi flokksins sem samkvæmt fyrstu tölum hefur tvöfaldað fylgi sitt. "Þetta er nú bara með sögulegri sigrum sem maður hefur séð en auðvitað er leiðinlegt að það verði ekki stjórnarskipti. Það má segja að þetta sé hliðstætt kosningunum heima, þar sem við vorum sigurvegarar kosninganna en það urðu ekki stjórnarskipti," segir Steingrímur sem var í miðjum látunum þegar Vísir náði af honum tali. Hann sagði menn þó ekki vera að svekkja sig á því heldur væru í sigurvímu og létu þá staðreyndi í léttu rúmi liggja. "Það er að vísu ekki alveg útséð með hversu stór meirihlutinn verður en það er nokkuð öruggt að meirihlutinn verður veikari en áður," sagði Steingrímur en það lítur allt út fyrir að nú þurfi fjórir flokkar að vinna saman í stað þriggja. "Það verður spennandi að sjá hvernig það samstarf á eftir að ganga. Þeir eru eins og hundar og kettir í innflytjendamálum og fleiru. Formaðurinn gaf í skyn í ræðu sinni að hann héldi að það yrði boðað fljótlega aftur til kosninga." Steingrímur sagði klárt mál að það hefðu verið mistök hjá Anders Fogh Rasmusen að boða til kosninga á þessum tíma, hann hefði oftmetnast og haldið að hann hefði þetta í hendi sér. "Hann kemur veikari út úr þessu en hann var áður og landslagið er verulega breytt á vinstri vængnum. Velferðarmálin verða til dæmis meira á dagskránni, það er alveg klárt mál," sagði Steingrímur og bætti því við að mjög greinileg vinstri sveifla væri í dönskum stjórnmálum um þessar mundir.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira