Vilhjálmur segist hafa orðið fyrir ómaklegum árásum 10. október 2007 16:55 Vilhjálmur segist reiðubúinn til að leggja öll spilin á borðið.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sagðist á aukafundi í borgarstjórn í dag hafa sætt ómaklegum árásum í REI-málinu. Þá lýsti hann því yfir að hann vildi leggja öll gögn á borðið. Oddviti Samfylkingarinnar sagði borgarstjóra rúinn trausti og margsaga. Troðfullt var á pöllum í Ráðhúsinu þegar borgarstjórnarfundurinn hófst klukkan fjögur en ætlunin er að ræða málefni Orkuveitunnar og Reykjavik Energy Invest. Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, var fyrstur í pontu og sagði að í allri umfjöllun um málefni REI væri eins og meirihlutinn í borgarstjórn og borgarstjóri hefði gleymt því algjörlega til hvers hann væri kosinn. Það kæmist fyrir í einu orði: almannahagsmunir. Dagur benti á að það væri ekki séríslenskt fyrirbrigði hjá opinberum fyrirtækjum að ráðast í útrás með einkaaðilum og að sátt hefði verið um það hingað til. Sjálfstæðismenn héngju hins vegar nú á menntaskólafrjálshyggju sem þeir drægju upp úr rassvasanum í fumi og fáti. Benti hann á fjölmörg önnur dæmi í útrás Orkuveitunnar sem meirihluti sjálfstæðismanna hefði ekki sett út á. Þá sagði hann valkost Sjálfstæðisflokksins nú að sú þekking, tækni og upplýsingar yrðu nú afhentar vinum þeirra á sérkjörum. Dagur B. Eggertsson sagði Samfylkinguna tilbúna til þess að gera bandalag við þá sem vildu staldra við í málinu og opna það upp á gátt þannig að hægt væri að leiðrétta það sem mislaga hefði farið. Endurheimta traust á borgarstjórn. Sagði hann lykilatriði fyrir meirihlutann að viðurkenna mistökin, axla ábyrgð, fá fullkomna rannsókn og taka það aftur sem miður hefur farið Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagðist aldrei á ævinni hafa verið kallaður lygari áður og að hann hefði sætt afar ómaklegum árásum. Hann hefði tekið málið nærri sér. Sagði hann ekki stofnað til málsins til þess að valda skaða. Samstaða hefði verið um það á stjórnarfundi Orkuveitunnar að sameina Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy en fulltrúi Vinstri - grænna hefði setið hjá. Sagði hann verið að slá ryki í augu fólks þegar því væri haldið fram að eitthvað annað hefði gerst en að samþykktum hefði verið fylgt eftir. Sagðist hann reiðubúinn að leggja öll spil á borðið og reyna að ná sameiginilegri lendigu með minnihlutanum í borgarstjórn. Sagði hann enn fremur að það væri ekki verkefni borgarstjórnar að taka mikla áhættu og því væri áfram stefnt að því að selja hlut Orkuveitunnar í REI. Lágmarka þyrfti áhættu borgarbúa. Hann sagði enn fremur að samrunaferli REI og GGE héldi áfram. Það tæki um sex vikur og í framhaldinu yrði leitað til færustu sérfræðinga áður en hlutur borgarinnar yrði seldur. Þannig yrðu hagsmunir borgarbúa tryggðir. „Ég hef ekkert að fela í málinu," sagði borgarstjóri.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira