Innlent

Tæpar 82 milljónir í biðlaun alþingismanna

MYND/PJ

Útgjöld ríkisins vegna biðlauna þeirra alþingismanna sem létu af þingmennsku eftir síðustu kosningar nema tæpum 82 milljónum króna. Þetta kemur fram í fjáraukalögum.

Alþingi hafði fyrir 46,5 milljónir króna fjárveitingu í fjárlögum til greiðslu biðlauna alþingismanna og var tekið mið af biðlaunagreiðslum árið 2003. Í greinargerð í fjáraukalögum kemur fram að mun fleiri þingmenn hafi látið af störfum síðasta vor samanborið við árið 2003 og því sé áætlað að heildargreiðslur vegna biðlauna nemi 81,5 milljónum króna. Meðtalið í þeirri fjárhæð er þingfararkaup og fastar greiðslur frá 13. maí til 31. maí. Alls aukast greiðslurnar um 35 milljónir króna milli tímabila.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×