Innlent

Vill að Alþingi taki afstöðu til áfengis

Siggi Kári vill búsið í Bónus.
Siggi Kári vill búsið í Bónus.
Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er fyrsti flutningsmaður frumvarps sem felur í sér að matvöruverslunum verði heimilað að selja áfengt öl og léttvín.

Þetta er í fimmta skiptið sem frumvarpið er lagt fram en það hefur aldrei verið tekið til afgreiðslu. Sigurður Kári á von á því að frumvarpið verði afgreitt efnislega nú.

"Forseti þingsins veit að það er áhugi fyrir því frumvarpið verði tekið efnislegrar afgreiðslu. Sama hvernig sem atkvæðagreiðslan í þinginu mun svo fara," segir Sigurður Kári.

Sigurður segist binda miklar vonir við að eftir kosningar hafi komið inn á þing réttsýnt fólk með nútímalegt viðhorf sem átti sig á því að tími sé kominn til að afnema einokunarverslun ríkisins með áfengi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×