Innlent

Tæpar tíu milljónir til kaupa á nýjum bíl handa forsetaembættinu

MYND/VV

Farið er fram á tæpar tíu milljóna króna fjárveitingu til að endurnýja aðra af tveimur bifreiðum forsetaembættisins á fjáraukalögum. Gert er ráð fyrir því að nýja bifreiðin verði umtalsvert ódýrari í rekstri en sú eldri.

Í athugasemdum í fjáraukalögum kemur fram að óskað er eftir fjárveitingunni þar sem önnur bifreið embættisins sé orðin fjórtán ára gömul. Þá segir ennfremur að nýja bifreið sé með blendingsvél sem sækir orku jafnt til rafmagns og bensíns. Alls er farið fram á 9,8 milljónir króna í fjárveitingu vegna kaupanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×