Alexandra gengin út 5. mars 2007 10:00 Alexandra Christina skartaði kampavínslituðum kjól þegar hún gekk í það heilaga með ljósmyndaranum Martin Jørgensen
Alexandra Chrstina Mansley, fyrrverandi prinsessa Dana, gekk að eiga ljósmyndarann Martin Jørgensen við hátíðlega athöfn í Øster Egede-kirkjunni að viðstöddum nánum vinum og ættingjum. Alexendra var klædd í kampavínslitaðan kjól frá Henrik Hviid og virtist njóta hverrar mínútu. Þegar hún kom að kirkjudyrunum brá Alexandra á leik við þá fjölmörgu gesti og gangandi sem biðu eftir að fá að sjá hana og sagði: „Við komum aftur út,“ við mikil hlátrasköll nærstaddra. Hjónakornin nutu liðsinnis frá prinsunum tveim, hinum sjö ára gamla Nikolai og fjögurra ára gamla Felix, en þá á Alexendra með Jóakim prins. Hann var reyndar víðsfjarri við athöfnina enda hefði það verið í hæsta máta óvenjulegt þrátt fyrir að danskir fjölmiðlar fullyrði að þau séu enn þann dag í dag góðir vinir. Ólíkt því sem var árið 1995 þegar Alexandra gekk kirkjugólfið við konunglega athöfn voru aðalsbornir gestir víðsfjarri og glamúrinn og glysið ekki jafn áberandi. Dönsku blöðunum bar hins vegar saman um að athöfnin hefði verið bæði látlaus og falleg. Hjónin buðu síðan til glæsilegrar veislu eftir kirkjuna sem haldin var á Jomfruens Egede en þar hélt góðvinur, Mark Petterson, skálarræðu fyrir hin nýgiftu. Til gamans má geta að Petterson er einmitt eiginmaður Miu Egmont Petersen sem eitt sinn var trúlofuð Friðriki krónprins, fyrrverandi mági Alexöndru.
Mest lesið „Það spurði þig enginn“ Lífið Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Selur slapp úr hvalskjafti Lífið Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina Lífið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Lífið Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Lífið samstarf Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Lífið Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Tónlist Fleiri fréttir Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Ráðgjafi Bandaríkjaforseta í Hörpu Fyrsta starfið að fara út með hund Madonnu Tito Jackson er látinn „Hefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn?“ Ratleikur sem endaði með óvæntu brúðkaupi Ljósmyndaþáttur Ragnars Axelssonar: „Fjöllin hafa vakað lengur en í þúsund ár“ Sex heilnæm heilsuráð inn í haustið Krakkatía vikunnar: Litir, ljón og sjón Ástin blómstrar hjá Erpi og nýju kærustunni á Ítalíu Sjá meira