Alcan braut persónuverndarlög 10. október 2007 12:12 MYND/Anton
Persónuvernd hefur komist að því Alcan hafi brotið gegn lögum um persónuvernd þegar félagið aflaði upplýsinga um afstöðu fólks til stækkunar álvers félagsins í Hafnarfirði í mars síðastliðnum.Íbúakosning var í Hafnarfirði í mars um það hvort stækka ætti álver Alcan. Í aðdraganda kosninganna kom í ljós að Alcan hafði fengið starfsmenn félagsins til þess að safna upplýsingum um afstöðu að minnsta kosti tíu nágranna sinna eða vina til stækkunar álversins. Var upplýsingunum komið í sérstakan gagnagrunn.Persónuvernd rannsakaði málið en Alcan vísaði því á bug að félagið bæri ábyrgð á vinnslu persónupplýsinga og því bæri félaginu ekki að veita tilteknar upplýsingar í málinu. Stjórn Persónuverndar komst hins vegar að því að Alcan væri ábyrgðaraðili vinnslunnar þar sem félagið hefði ákveðið að afla upplýsinganna og að starfsmenn félagsins söfnuðu þeim.Gögnum eytt þrátt fyrir fyrirmæli um annaðÓskaði Persónuverd í framhaldinu eftir aðgangi að upplýsingum í gagnagrunninum til þess að geta skorið úr um það hvort upplýsingarnar hefðu verið rekjanlegar til einstakra manna. Þau svör fengust hins vegar í haust að öllum gögnum í málinu hefði verið eytt í sumar.Það var gert þrátt fyrir að Alcan hefði sent þeim aðila sem vann gagnagrunninn fyrir Alcan tölvupóst um að ekki mætti eyða gögnum sem kynnu að varpa ljósi á málið. Hins vegar er bent á í úrskurði Persónuverndar að Alcan hafi ekki fengið sérstakt bréf þar sem áréttað var að ekki mætti eyða gögnunum. Því telur Persónuvernd að ekki verði fullyrt hvort upplýsingarnar hafi rekjanlegar til starfsmanna.Persónuvernd komst hins vegar að því að Alcan hefði brotið gegn lögum um persónuvernd með því að greina þeim sem upplýsinga var aflað um ekki frá því að svör þeirra yrðu skráð.
Mest lesið „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Erlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Innlent Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Innlent Fleiri fréttir Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Sjá meira