Fékk áttfalt blóðmagn úr Blóðbankanum 10. október 2007 11:20 Blóðbankinn þarf að minnsta kosti 70 blóðgjafir á dag.
Karlmaður á fertugsaldri fékk 40 lítra af blóði eftir að hafa slasast alvarlega þegar bíll hans valt á Hellisheiði eystri á miðvikudag fyrir hálfum mánuði. Maðurinn var fluttur til Reykjavíkur í sjúkraflugi, eftir því sem kemur á vefnum Vopnafjörður.is. Hann gekkst undir aðgerðir við komuna til Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum Vísis kom þriggja sentimetra rifa á ósæðina, hann hryggbrotnaði og rifbeinsbrotnaði og bæði lungu sködduðust. Við aðgerðina og eftir hana var manninum gefið alls fjörutíu lítra af blóði. Þetta er ríflega áttfalt það blóðmagn sem rennur um æðar meðalstórs karlmanns. Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir í blóðbankanum, sagðist í samtali við Vísi ekki geta tjáð sig um mál einstakra sjúklinga. Hann segir þó að þegar alvarleg slys verði og gera þurfi miklar aðgerðir á sjúklingum þurfi stundum að gefa sjúklingum margfalt blóðmagn þeirra við aðgerð og eftir. Sveinn vill þó vekja sérstaka athygli á að Landspítalinn þurfi blóð við daglega umönnun sjúklinga. Hann segir að vel hafi gengið að safna blóði meðal virkra blóðgjafa í sérstöku átaki í síðustu viku. Nú bjóði Blóðbankinn nýja blóðgjafa sérstaklega velkomna.
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent „Gamla góða Ísland, bara betra“ Innlent Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira