Tjá sig ekki um málefni einstakra starfsmanna OR 10. október 2007 11:38 MYND/Höskuldur
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hyggjast ekki tjá sig um málefni einstakra starfsmanna Orkuveitunnar, að sögn Gísla Marteins Baldurssonar, formanns borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna. DV segist hafa heimildir fyrir því að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilji ekki sjá Guðmund Þóroddsson aftur í forstjórastól Orkuveitunnar vegna málefna Reykjavik Energy Invest. Hann er sem stendur í launalausu leyfi þar sem hann sinnir nú starfi forstjóra REI sem upphaflega átti að vera útrásararmur Orkuveitunnar en hefur nú sameinast Geysi Green Engergy. „Við tjáum okkur ekki um einstaka starfsmenn Orkuveitunnar. Okkur finnst það ósmekklegt," segir Gísi Marteinn í samtali við Vísi og segir frétt DV vera getgátur. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins töluðu um trúnaðarbrest milli þeirra og lykilstjórnenda Orkuveitunnar á blaðamannafundi á mánudag en Gísli Marteinn vildi ekkert segja um það hvort sá trúnaðarbrestur hefði afleiðingar fyrir lykilstarfsmenn Orkuveitunnar. Málið yrði rætt áfram. Aðspurður hvort ekki hefði líka orðið trúnaðarbrestur á milli sjálfstæðismanna og Björns Inga í ljósi þess að Björn Ingi sæti bæði í stjórn Orkuveitunnar og REI sagði Gísli Marteinn að trúnaðarbresturinn hefði orðið á milli starfsmanna Orkuveitunnar og borgarfulltrúa, Björn Ingi væri ekki starfsmaður Orkuveitunnar. Þá sagði Gísli aðspurður að ekki væri búið að finna eftirmann Hauks Leóssonar í stjórn Orkuveitunnar en meðal þess sem fólst í sátt sjálfstæðismanna á mánudag var að Haukur viki úr stjórninni og að borgarfulltrúi settist þar inn. Meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í borginni fundar nú í hádeginu. Þar verður farið yfir málin fyrir aukafund í borgarstjórn í dag þar sem rætt verður um málefni REI og Orkuveitunnar.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira