Innlent

Hass tekið á hótelherbergjum

Níu manns voru handteknir eftir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði húsleit í herbergjum á tveimur hótelum í miðborginni í gær. Samtals fundust um hundrað grömm af hassi og lítilræði af öðrum fíkniefnum.

Óeinkennisklæddum lögreglulmönnum fíkniefnadeildarinnar tókst að koma fólkinu að óvörum. Fólkinu var öllu sleppt í gærkvöldi að loknum yfirheyrslum og verða málin send ríkissaksóknara. Þetta voru allt Íslendingar en höfðu einhverra hluta vegna hreiðrað um sig á hótelherbergjum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×