Hitti Stallone á flugvellinum 26. febrúar 2007 08:30 Magnús Ver hefur leynt og ljóst lagt drög að ferli í Hollywood og leikur í bjórauglýsingu fyrir Coors Light.
Magnús Ver Magnússon lék nýverið í bandarískri bjórauglýsingu. Hann segir að sér hafi liðið eins og Hollywood-stjörnu meðan á tökunum stóð. „Þetta er herferð fyrir Coors,“ segir Magnús Ver Magnússon, kraftajötuninn góðkunni sem lék nýlega í bandarískri bjórauglýsingu. „Coors Light,“ bætir hann við og hlær enda kannski hálf fyndið að maður að þessum vexti skuli leika í auglýsingu fyrir hitaeiningasnauðan öllara. „ Ég er reyndar hrifinn af þessum bjór, hann er ekki of bragðmikill en viðurkenni að ég geri ekki mikið af því að drekka bjór,“ segir Magnús. Meðal annarra sem taka þátt í þessari herferð Coors er Michael Johnson sem margir íþróttaáhugamenn ættu að kannast við en hann einokaði 200 og 400 metra hlaupin og er margfaldur ólympíuverðlaunahafi í þessum greinum. „Mér leið nú reyndar eins og alvöru Hollywood-stjörnu, flaug út á Saga Class, gisti á fyrsta flokks hóteli og fékk minn eigin húsbíl,“ segir Magnús. „Og það voru í kringum sextíu manns sem störfuðu við gerð auglýsingarinnar,“ bætir hann við. Magnús vildi ekki gefa upp hver launin væru, sagði þó að þau væru rífleg og nægðu fyrir salti í grautinn. Auglýsingin gengur mikið út á krafta Magnúsar og lyftir hann meðal annars bíl fyrir ofan hausinn á sér, rífur hurð af hjörum og slær mann út af bar fyrir slysni. Gerð auglýsingarinnar tók heilan dag og kom Magnús heim fyrir nokkrum dögum. Hann vissi þó ekki hvenær herferðinni yrði hleypt af stokkunum en gerði ráð fyrir að hann fengi sent eintak þegar auglýsingin hans væri tilbúin til sýningar. Magnús segist ekki hafa gert mikið af því að leika í svona stórum auglýsingum en hann hefur verið tíður gestur þar vestra. Var meðal annars fyrstu Íslendinga til að koma fram í þætti David Letterman. Og Magnús viðurkennir að leynt og ljóst hafi það alltaf verið draumur um að gera eitthvað í Hollywood. „Er Arnold ekki orðinn alltof gamall?“ segir Magnús í gríni en ljóst má vera að þar liggur meiri alvara að baki. Og að venju þegar fólk heldur til Englaborgarinnar í Kaliforníu er stutt í stórstjörnurnar. „Ég var nú bara á flugvellinum í Kaliforníu og var að ræða málin við eitthvað fólk. Þá kom sjálfur Sly Stallone á röltinu framhjá og kinkaði kolli til mín. Ég veit nú reyndar ekkert hvort hann þekkti mig eða ekki,“ segir Magnús.
Mest lesið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist Fleiri fréttir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Sjá meira