Ólögleg Siv er ekkert sár 15. febrúar 2007 07:30 Siv Friðleifsdóttir er skírð upp á norska vísu og er rífandi stolt af nafni sínu. „
Ég er rífandi stolt af nafni mínu, er fædd og skírð upp á norska vísu í Nordstrandkyrkje," segir Björg Siv Juhlin Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, þegar hún er spurð um nýlegan úrskurð mannanafnanefndar um að nafnið Siv samræmist ekki íslenskri hefð. „Ég fæ vonandi að komast aftur inn í landið," bætti Siv við en ráðherra var staddur í Brussel þegar Fréttablaðið ræddi við hana. Mannanafnanefnd hefur úrskurðað að nafnið Siv samræmist ekki íslenskri hefð en þó nokkrir hafa sótt um að fá að skíra stúlkubörn sín þessu nafni. Ekki voru gerðar neinar athugasemdir við nöfnin Eufemía, Róbjörg, Líba og Marit og þá eru nöfnin Jeanne og Íssól til skoðunar. En ljóst er að sannkristnir framsóknarmenn geta ekki nefnt börn sín eftir ráðherranum. Samkvæmt Hagstofu bera fimm konur nafnið Siv sem eiginnafn og fjórar sem millinafn. „Ég gæti náttúrlega laumast inn með nafnið Björg sem er gott og gilt íslenskt nafn," hvíslar ráðherra sem er ekki að fetta fingur út í mannanafnanefndina umdeildu og segir hana bara vera að vinna sitt verk. „Þeir eru að huga að íslenskunni og vernda hana eftir bestu getu. Og þessi nefnd er ekki úrelt fyrirbæri," segir Siv. „Þrátt fyrir þennan úrskurð," bætir hún við og tekur þetta augljóslega ekki nærri sér. Nafnið Siv með v-i er komið úr norrænni goðafræði og hét meðal annars kona Þórs þessu nafni. „Ég hef sjálf beygt þetta eftir íslenskum reglum en séð ýmislegt skrautlegt þegar kemur að notkun þess. Sumir hafa skrifað Svif eða jafnvel Svið," segir Sif og hlær.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira