Tískusýning í miðbænum 24. ágúst 2007 03:00 Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir kynnir nýja fatalínu sína á tískusýningu ER og 101 Hárhönnunar á Skólavörðustígnum á laugardag.
Verslunin ER og hársnyrtistofan 101 Hárhönnun standa fyrir tískusýningu á Skólavörðustígnum á laugardag. Þar fyrir utan mun Þórhildur Ýr Jóhannesdóttir kynna nýja fatalínu sína undir nafninu Tóta Design. Tískusýning á vegum ER og Hárhönnunar er nú haldin í annað skipti. „Í fyrra gekk þetta allt vonum framar. Við ákváðum að halda hana aftur í ár, af því okkur fannst þetta líka alveg ótrúlega gaman,“ sagði Þórhildur, annar eigandi hárgreiðslustofunnar. Auk hennar standa Áslaug Harðardóttir hjá ER, og Hildur Sif Kristborgardóttir, förðunarfræðingur og meðeigandi Þórhildar, fyrir sýningunni. Bæði ER og 101 Hárhönnun eru við Skólavörðustíginn, sem varð því fyrir valinu sem sýningarstaður. „Okkur fannst það svona ný og skemmtileg hugmynd að hafa „runwayið“ á götunni sjálfri. Skólavörðustígurinn er líka að blómstra núna, svo þetta er líka dálítil kynning fyrir hann,“ útskýrði Þórhildur, sem iðulega er kölluð Tóta. Tóta kynnir eigið fatamerki í ár, undir nafninu Tóta Design. „Ég er búin að vera að hanna og sauma svona af og til í nokkur ár, en er núna að senda frá mér línu í fyrsta skipti. Ég er í rauninni að þessu af því að mér finnst þetta svo skemmtilegt, ég er ekki menntuð á þessu sviði,“ útskýrði hún. „Eftir að við ákváðum að halda sýningu aftur fannst mér þetta bara kjörið tækifæri til að skella mér út í djúpu laugina,“ bætti hún við. Tóta hefur áður selt dálítið af hönnun sinni á 101 Hárhönnun og föt úr nýju línunni verða fáanleg þar. Vegna tískusýningarinnar verður Skólavörðustígnum lokað á milli 14 og 17 á laugardag. Á sýningunni verður sýndur klæðnaður frá þekktum fatahönnuðum á borð við Rundholz og Annette Görtz. Léttar veitingar verða í boði fyrir sýninguna, sem er opin öllum.
Mest lesið Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Lífið Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Lífið Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Lífið Melanie Watson er látin Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Fleiri fréttir Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Melanie Watson er látin Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein