Stjórnar þætti í spænsku sveitaútvarpi 16. nóvember 2006 15:00 Jón Sigurður Glaðbeittur í hljóðveri útvarpsstöðvarinnar Carbonero Radio þar sem hann stjórnar útvarpsþætti.
Flökkukindin Jón Sigurður Eyjólfsson hélt á vit ævintýranna fyrir skömmu og fluttist til smábæjarins Carbonero sem er á spænsku hásléttunni en hann á þar spænska dóttur. Þar sinnir Jón einkakennslu í ensku fyrir fyrirtæki og einstaklinga en á milli kennslustunda leyfir hann íbúum bæjarins að njóta tónlistarsmekks síns á útvarpsstöð bæjarins, Carbonero Radio. „Ég vissi nú bara af þessari útvarpsstöð og vildi láta til mín taka,“ svarar Jón Sigurður þegar hann er spurður hvernig standi á því að hann stjórni útvarpsþætti í smábæ. „Þátturinn heitir Strengjað vegabréf en í hverri viku tek ég fyrir eitt land og spila tónlist frá því,“ segir Jón Sigurður sem leggur mikinn metnað í útvarpsþáttinn, hefur spilað lög frá Grikklandi og ætlar í næstu viku að taka á móti búlgörskum og rúmenskum íbúum bæjarins og fá þá til að segja frá landi og þjóð. Íslandi hefur að sjálfsögðu verið gert hátt undir höfði og tók útvarpsmaðurinn meðal annars fyrir gamla heimabæinn sinn Bíldudal. „Ég sagði frá gömlum prakkarastrikum mínum þar, kynnti Jón Kr. Eyjólfsson og spilaði tónlist eftir sveitunga mína,“ útskýrir Jón og bætir við að hann ætli að taka Bubba Morthens fyrir í næsta þætti. „Íbúunum fannst þetta stórmerkilegt enda hafa margir hverjir ekki einu sinni séð sjóinn,“ útskýrir Jón.
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira