Landlæknir varar einstaklinga og fyrirtæki við því að birgja sig upp af fuglaflensulyfjum 23. janúar 2006 20:50
Landlæknir varar eindregið við því að einstaklingar og fyrirtæki birgi sig upp af lyfjum vegna fuglaflensunnar. Það geti leitt til þess að birgðir gangi til þurrðar, og það sem verra er, að ótímabær notkun lyfsins vegna venjulegrar flensu geti leitt til ónæmis. Hann segist munu spyrna við fótum ef fyrirtæki taki upp á því í miklum mæli að hamstra lyfið. Stjórnvöld á Vesturlöndum hafa á undanförnum misserum birgt sig upp af inflúensulyfinu Tamíflú, sem talið er að geti dregið úr áhrifum fugleglensunnar ef hún fer að berast á milli manna. Þó eru skiptar skoðanir um virkni lyfsins. Hér á landi eru nú til tæplega 90 þúsund skammtar af lyfinu, og í fréttaþættinum Kompás sem sýndur var á NFS og Stðð 2 í gær kom fram að nú þegar hefur eitt fyrirtæki orðið sér úti um lyfið fyrir alla starfsmenn sína. Lyfið er lyfsseðilskylt og landlæknir segir fyrirtæki ekki geta gert þetta nema trúnaðarlæknir skrifi lyfseðil fyrir hvern og einn starfsmann fyrirtækisins. Hann hefur heyrt af vangaveltum manna að undanförnu um að það gæti borgað sig að birgja sig upp af þessu lyfi, en mælir eindregið gegn því, meðal annars vegna þess að þetta er enn sjúkdómur fugla og berst ekki á milli manna. Í öðru lagi er sjúkdómurinn ekki enn kominn hingað til lands og það mun ekki gerast fyrirvaralaust, þannig að fólk hefur nægan tíma til að undirbúa sig.
Fréttir Innlent Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Fleiri fréttir Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna Gífurlegir hagsmunir í húfi ef tæknin kemst í rangar hendur Vísindi á vordögum: Af hverju er offita enn þá vandamál? Hættuleg framþróun gervigreindarinnar, vopnahlé og kosningapallborð Töluverð skautun í málefnum Ísraels og Palestínu Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Sjá meira