Gæti kostað sex milljarða í fyrstu 3. maí 2006 12:15
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli getur kostað hátt í sex milljarða króna fyrsta árið eftir að Íslendingar taka við rekstri þess. Rekstur flugvallarins kostar um 1.400 milljónir króna á ári og stofnkostnaður gæti hlaupið á milljörðum.Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar tekur við slökkviliði og öðru sem snýr að rekstri flugvallarins þegar Bandaríkjaher heldur héðan á brott. Lagafrumvarp utanríkisráðherra í þessa veru var lagt fram á Alþingi í gærkvöldi. Þar segir að flugmálastjórnin annist stjórnun, rekstur og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar - og er þá einkum horft til slökkviliðsins og snjóruðnings- og brautadeildar.Það verður ekki ódýrt að taka við rekstri slökkviliðsins. Samkvæmt útreikningum fjármálaráðuneytisins kostar rekstur þess 1.400 milljónir króna á ári. En fyrst þarf að búa það tækjum. Kostnaður við það er óljós en fasteignir og tækjabúnaður slökkviliðs varnarliðsins er metinn á 4,3 milljarða króna.Ekki hefur verið gengið frá því hvernig tækjabúnaði slökkviliðsins verður háttað. Slökkvibúnaður og annar sérhannaður tækjabúnaður verður ekki keyptur út úr búð, eins og einn viðmælandi orðaði það, og því er líklegasta niðurstaðan sú að slökkviliðið yfirtaki búnað Bandaríkjahers, í það minnsta fyrst um sinn.Miklar breytingar verða á starfsemi Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar. Þess sér meðal annars stað í starfsmannahaldi. Starfsmenn eru nú 62 talsins en viðbúið er að þeir verði um 200 þegar rekstur slökkviliðsins bætist við.Bjóða á öllum starfsmönnum varnarliðsins sem unnið hafa við rekstur flugvallarins vinnu eftir því sem því verður við komið. Þar er um að ræða starfsmenn slökkviliðsins, snjóruðnings- og brautadeildar, rafeindadeildar, voltadeildar og verkfræðideildar.Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri fagnar því að nú skýrist hvernig málum verður háttað. Björn Ingi segir að nú skapist festa fyrir það fólk sem hefur unnið þessi störf og hann hyggst funda með starfsfólki á næstu dögum.Ný flugsveit tekur við loftvörnum Íslands í vikunni. Venjan er að sveitir bandaríska flughersins skiptist á um að sjá varnarliðinu fyrir þotum og eru hér tvo til þrjá mánuði í senn. Því má gera ráð fyrir að hér verði loftvarnir alla vega í tvo eða þrjá mánuði enn.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Fleiri fréttir Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Sjá meira