Háskóli Íslands brýtur jafnréttislög í annað sinn á árinu 19. desember 2006 13:36
Kærunefnd jafnréttismála komst í gær að þeirri niðurstöðu að Háskóli Íslands hefði brotið gegn jafnréttislögum þegar hann réð karlmann í stöðu sérfræðings við stærðfræðistofu Raunvísindastofnunar HÍ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögmanni konunnar.Kona heitir Freyja Hreinsdóttir og hún er doktor í stærðfræði og hafði fjögurra ára starfsreynslu við stærðfræðistofu þegar henni var hafnað. Freyja er nú dósent í stærðfræði við Kennaraháskóla Íslands.Í tilkynningunni segir einnig að niðurstaða kærunefndarinnar sé sú að Háskólinn hafi ekki getað rökstutt ráðningu karlmannsins út frá hæfni viðkomandi og ekki getað sýnt fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið til grundvallar þeirri ákvörðun að ráða karlmann í stöðuna. Þetta er í annað sinn á árinu sem kærunefnd jafnréttismála úrskurðar að Háskóli Íslands hafi brotið jafnréttislög vegna ráðninga í raunvísindum. Í júni komst kærunefndin að því að gengið hefði verið fram hjá Önnu Ingólfsdóttur þegar ráðið var í stöðu dósents í tölvunarfræði við verkfræðideild Háskólans í fyrra. Anna starfar nú sem prófessor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík Í tilkynningu lögmanns Freyju segir að af niðurstöðunni í gær og fyrri niðurstöðu í máli Önnu Ingólfsdóttur verði að draga þá ályktun að Háskóli Íslands þurfi að bæta verulega ráðningaraðferðir svo þær standist stjórnsýslu- og jafnréttislög.Þess má geta að félagsmálaráðuneytið veitti skólanum jafnréttisviðurkenningu fyrr á árinu fyrir að hafa kosið konu sem rektor og fyrir að hafa staðið vel að jafnréttismálum í gegnum árin.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira