Tillögur um milljarða útgjaldaaukningu 23. nóvember 2006 18:30
Stjórnarandstaðan leggur til að rúmum sjö milljöðrum króna verði varið til að bæta hag elli- og örorkulífeyrisþega, við aðra umræðu fjárlaga sem hófst á Alþingi í dag. Stjórnarmeirihlutinn leggur einnig til að útgjöld verði aukin verulega á næsta ári en fjármálaráðherra segir engu að síður ekki hægt að tala um kosningafjárlög. Tekjur ríkissjóðs halda áfram að aukast og nú er gert ráð fyrir að þær verði rúmlega þremur milljörðum meiri á næsta ári en gert var ráð fyrir þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram í haust, eða 376,4 milljarðar króna. Það er við aðra umræðu fjárlaga sem tillögur eru lagaðr fram um breytingar og í morgun kynnti stjórnarandstaðan sameignlegar tillögur Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins. Nú þegar sex mánuðir eru til kosninga takast stjórn og stjórnarandstaða á um síðustu fjárlög Alþingis fyrir kosningarnar í vor. Báðir aðilar leggja til aukin útgjöld, samanlagt upp á um 17 þúsund milljónir króna. Stjórnarandstaðan leggur til að elli - og örorkulífeyrisþegar geti þénað 900 þúsund krónur á ári án þess að bætur þeirra skerðist, en stjórnarliðar vilja að frítekjumarkið verði 300 þúsund. Þá vill stjórnarandstaðan að tekjutrygging ellilífeyrisþega verði 85 þúsund og örorkulífeyrisþega 86 þúsund, tengsl lífeyrisgreiðslna við tekjur maka verði afnumin, vasapeningar þeirra sem búa á stofnunum verði hækkðir um 50 prósent, sem og frítekjumark sem fari í 75 þúsund krónur á mánuði. Þá vill stjórnarandstaðan að öryrkjar haldi aldurstengdri örorkuuppbóta við töku ellilífeyris að tekjur skerði tekjutryggingu um 35 prósent í stað 45 prósenta. Katrín Júlíusdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd Alþingis, var talsmaður stjórnarandstöðunnar á sameiginlegum fréttamannafundi hennar í dag. Katrín segir kjarnan í tillögum stjórnarandstöðunnar verða að bæta hag elli - og örorkulífeyrisþega, en tillögurnar kosta rúmelga sjö milljarða. Á móti leggur stjórnarandstaðan til að tekjur ríkissjóðs verði auknar um rúma fimm milljarða og munar þar mest um skatta á tekjur og hagnað. Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, segir jákvætt að stjórnarandstaðan leggi sameiginlega fram tillögur, en telur ekki líklegt að þær nái fram að ganga við afgreiðslu fjárlaga. Í tillögum stjórnarliða er útgjaldaaukning upp á 9,5 milljarða og ýmsar aðrar tilfærslur sem þýða að afgangur á fjárlögum verður 8,9 milljarðar í stað 15 eins og fjárlagafrumvarpið frá því í haust gerði ráð fyrir. Fjármálaráðherra segir stærstu fjárhæðirnar fara til menntamála og Landsspítalans háskólasjúkrahúss og þær hefðu ratað þangað hvort sem kosningar væru framundan eða ekki.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira