Björgunarsveitir klári verkefni og verði svo í viðbragðsstöðu 20. desember 2006 17:06 Samhæfingarstöð hefur verið virkjuð. MYND/Stöð 2
Almannavarnarnefndir í Árnessýslu ákváðu á fundi sínum sem var að ljúka björgunarsveitir muni ljúka fyrirliggjandi verkefnum og fara síðan heim að því loknu en verða viðbúnar útköllum. Þær hafa í dag aðstoðað hestaeigendur við að bjarga hrossum úr úthaga.Í tilkynningu almannavarna kemur fram að skemmdir hafi orðið á vegum í uppsveitum sýslunnar og eru vegfarendur hvattir til að hafa varann á á ferðum sínum á flóðasvæðunum. Starfsmenn vegagerðar eru á ferð um sýsluna að merkja lokanir eins og hægt er.Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu hefur kallað til aðstoðar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og fengið þaðan menn og tæki til að bregðast við fari svo að flæði inn í hús í sýslunni en þegar hefur flætt inn í kjallara kirkjunnar á Selfossi. Slökkvilið Ölfuss er jafnframt í viðbragðsstöðu.Varað er við hugsanlegri skriðhættu í fjöllum vegna mikillar úrkomu og leysinga á skömmum tíma að undanförnu.Veðurspá gerir ráð fyrir áframhaldandi úrkomu en kólnandi með morgninum. Gera má ráð fyrir vaxandi rennsli í ám fram til miðnættis og að sú hæð haldist fram eftir nóttu að minnsta kosti. Fólk er því beðið að hafa varann á á ferðum sínum.Þá eru foreldrar hvattir til að gæta að börnum sínum og sjá til þess að þau fari ekki í of mikla nálægð við vatnsföll en nokkuð hefur borið á því að börn séu að leik á bökkum Ölfusár við Selfossi.Næsti fundur almannavarnarnefnda í Árnessýslu er boðaður klukkan tíu í fyrramálið og verður staðan þá metin.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sjá meira