Dregið úr brottkasti fisks á Íslandsmiðum 6. apríl 2006 15:05
Verulega hefur dregið úr brottkasti fisks á Íslandsmiðum samkvæmt nýrri könnun sem IMG Gallup gerði fyrir sjávarútvegsráðuneytið, en tímabil könnunarinnar var frá 29. desember 2005 - 24. janúar 2006. Niðurstöðurnar benda til að brottkast hafi minnkað um helming. Rúmlega 10% sjómanna urðu varir við brottkast í síðustu veiðiferð sinni. Fyrir fimm árum var hlutfallið ríflega 20% og rúm 18% í könnun fyrir tveimur árum. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra kynnti niðurstöðurnar á blaðamannafundi í dag. Samkvæmt útreikningum IMG Gallup er heildarbrottkast á fiski á sjó nú rúmlega 19.400 tonn á ársgrundvelli, en samkvæmt könnun sem framkvæmd var 2000-2001 var brottkastið u.þ.b. 38.400 tonn. Samkvæmt þessu hefur brottkast því minnkað um tæplega helming á síðustu 5 árum. Helmingi færri sjómenn urðu varir við brottkast nú en í könnuninni 2000-2001. Hlutfallið er nú 10,2% samanborið við 20,3% í könnuninni 2000-2001 og 18,4% í könnuninni í janúar 2004. Tæplega helmingur sjómanna telur brottkast á fiski hafa minnkað á síðustu 3 árum. Tæplega 40% telja brottkastið hafa staðið í stað, en einungis rúm 13% telja að það hafi aukist. Í langflestum tilfellum, eða tæplega 90%, segja sjómenn að undirmálsfiski hafi einkum verið kastað. Þróunin sem sést í könnunum IMG Gallup hefur komið heim og saman við árlegar rannsóknir Hafrannsóknastofnunar og Fiskistofu á brottkasti. Brottkast hefur minnkað á undanförnum fimm árum og er það til marks um ábyrga umgengni um auðlindina. Könnunin var gerð frá 29. desember 2005 til 24. janúar 2006. Í endanlegu úrtaki voru 1114 lögskráðir sjómenn á skrá hjá Siglingastofnun. 680 svöruðu eða 61,0%.
Innlent Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira