Gettu betur- sérfræðingarnir mætast í 8 manna úrslitum 6. apríl 2006 07:00
Um fyrstu viðureign 8 manna úrslitaSteinþór Helgi verður sá fyrsti í sögu Meistarans til að heyja sína þriðju viðureign, nú í 8 manna úrslitum. Nú þegar hefur hann lagt tvo andstæðinga af velli. Í fyrstu umferð lagið hann Erling Hansson framhaldsskólakennara og í annarri umferð - 16 manna úrslitnum - Björn Guðbrand Jónsson umhverfisfræðing. Jónas Örn sat hjá í fyrstu umferð, kom til leiks í 16 manna úrslitum og lagði þar Hauk Harðarson viðskiptafræðing. Þeir Steinþór Helgi og Jónas Örn eru báðir býsna vanir þátttöku í spurningakeppnum í sjónvarpi en báðir kepptu þeir fyrir skóla sína í Gettu betur - spurningakeppni framhaldsskólanna; Steinþór Helgi sigraði Gettu betur með Borgarholtsskóla og Jónas Örn vakti athygli fyrir frammistöðu sína með MH. Hvor þeirra verður fyrstur til að tryggja sér sæti í 4 manna úrslitum?Dregið hefur verið í allar viðureignir í 8 manna úrslitum. Hinar viðureignirnar eru sem hér segir: Illugi Jökulsson-Snorri Sigurðsson Mörður Árnason-Erlingur Sigurðsson Inga Þóra Ingvarsdóttir-Kristján Guy Burgess Meistarinn hefur fengið geysigóðar viðtökur síðan hann hóf göngu sína um síðustu jól. Það staðfestist í dagbókarkönnun Gallup, sem birt var á dögunum, en þar kemur fram að þátturinn er orðinn næstvinsælasti þátturinn á Stöð 2 á eftir Idol-Stjörnuleit með 41% uppsafnað áhorf meðal ákrifenda Stöðvar 2 og 21% meðal allra sjónvarpsáhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Einvígi upp á 5 milljónir krónaMeistarinn er alvöru spurningaþáttur, "klassískur spurningaþátt," eins og stjórnandi þáttarins, Logi Bergmann hefur orðað það. Fréttaþulurinn Logi Bergmann er hreint enginn aukvisi þegar kemur að því að stýra spurningaþætti en hann var stjórnandi spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur við góðan orðstír í sjö ár. Markmiðið með Meistaranum var að leiða saman til spennandi einvígis skörpustu menn og konur landsins; jafnt þau sem þegar eru orðin landsmönnum að góðu kunn fyrir frækna framgöngu í spurningakeppnum, sem og aðra sem til stendur að uppgötva, laða fram á sjónvarsviðið. Allir sem náð hafa 20 aldursárum áttu þess kost að taka þátt. Efnt var til inntökuprófs - "Meistaraprófs" - í nóvember á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði og var þáttaka með mesta móti. Þeir hlutskörpustu í prófinu munu mæta til leiks í Meistaranum, ásamt nokkrum af nafntogaðri gáfumönnum og spurningahaukum lansins. Meistarinn á sér enga fyrirmyndir, er nýr og fjölbreyttur spurningaþáttur fyrir alla fjölskylduna, sem sameina mun allt það besta sem tíðkast hefur í vinsælum spurningaþáttum. Spennan verður í hávegum höfð og mun ekki einasta reyna á þekkingu keppenda heldur ekki síður kænsku þeirra og heppni. Spurningar eru almenns eðlis, um allt og ekkert, allt frá því að vera níþungar í að vera laufléttar. Reynir því ekki einasta á gáfur keppenda heldur ekki hvað síst á kænsku og heppni. Einn mikilvægasti liðurinn í keppninni er nefnilega sá að keppendur þurfa að velja flokka ýmist handa sér eða mótkeppanda sínum. Keppendur þurfa því að spreyta sig á flokkum sem mótkeppandi velur jafnt og hinum ýmsu mynd- og hljóðdæmum. Þurfi keppandi því að hafa heppnina sín megin og leika leikinn að kænsku til að reyna að koma andstæðingum sínum fyrir kattanef. Sá sem krýndur verður Meistarinn eftir að hafa lagt alla keppinauta sína í maður-á-mann útsláttarkeppni mun fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Í fyrstu umferð sitja tíu manns hjá. Að fyrstu umferð lokinni þurfa þau sextán sem eftir standa að berjast upp á líf og dauða til að komast áfram í næstu umferð, rétt eins og um bikarkeppni sé að ræða. Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum kl. 20:05 og endursýndur á laugardögum kl. 16:00 og mánudögum kl. 23:00. Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV visis.is Einnig skal bent á vefsíðu þáttarins: www.visir.is/meistarinn Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um keppnina og keppendur, léttir spurningaleikir í boði og síðast en ekki síst þá bloggar Logi Bergmann reglulega um keppnina, spáir í spilin og greinir frá ýmsu kræsilegu sem ekki kemur fram í þáttunum sjálfum.
Meistarinn Mest lesið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira