Líkaminn fram yfir lífið 20. nóvember 2006 13:45 Þessi mynd frá tískuvikunni í Madríd vakti mikla athygli enda fyrirsætan óheyrilega grönn.
Umræðan um of mjóar fyrirsætur fer hátt um þessar mundir en átröskunarsjúkdómar og svelti hafa löngum verið tengd tískuheiminum. Nú hafa tvær frægar fyrirsætur dáið úr átröskunarsjúkdómnum með stuttu millibili og þær fréttir skekja nú tískuheiminn. Í ágúst á þessu ári dó hin 22 ára gamla fyrirsæta Luisel Ramos eftir að hafa fallið í yfirlið á tískusýningu. Ramos þjáðist af átröskun og var víst búin að vera matarlaus í nokkra daga áður en hún dó vegna hjartabilunar. Ramos var frá Úrúgvæ en í Suður-Ameríku fer tíðni átröskunar hækkandi. Dauðsfall hennar varð upphafið að umræðunni og brugðust margir við. Stjórnvöld í Madríd bönnuðu of mjóar fyrirsætur á sýningarvikunni þar og mörg stór nöfn í tískubransanum hafa lýst yfir stuðningi sínum við þetta uppátæki. Nú fyrir stuttu dó svo hin 21 árs gamla Carolina Reston frá Brasilíu en hún þjáðist af anorexíu. Reston var á leiðinni til Parísar í viðtal við tískuhús Giorgio Armani og því á mikilli uppleið í bransanum. Þremur dögum fyrir viðtalið lést Reston á sjúkrahúsi í Sao Paulo og hafa hennar nánustu sagt að matarvenjur Reston hafi einkennst af tómötum og eplum einum saman. Reston hóf fyrirsætustörf aðeins 13 ára gömul. Hinn margrómaði tískukóngur Giorgio Armani hefur einnig lýst yfir stuðningi sínum við baráttuna gegn átröskunarsjúkdómum og segist bara vilja kvenlega vaxnar fyrirsætur í sýningar sínar. „Fyrirsætur hafa stundum verið taldar aðeins gangandi herðatré en hið ofurgranna útlit er nú dottið úr tísku og heilbrigðið tekið við," segir Armani. Þetta er umdeilt mál og spurning hvernig fólk beri sig að til að sporna við dauðsföllum af þessu tagi. En svo mikið er víst að eitthvað verður að gera því fyrirsætur í dag eru jú fyrirmyndir kvenna á öllum aldri.
Menning Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið Fleiri fréttir Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Sjá meira