Lífið

Samtökin Forma fá Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

Forma, samtökum átröskunarsjúklinga á Íslandi, var veitt Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í dag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Ölmu Geirdal og Eddu Ýr Einarsdóttur, stofnendum Forma, verðlaunin alls eina milljóna króna. Þessi nýstofnuðu samtök þykja hafa staðið vel að baráttunni gegn átröskunarsjúkdómum og veitt sjúklingum og aðstandendum þeirra mikla hjálp. Alls bárust 300 tilnefningar til verðlaunanna frá almenningi en verðlaun eru veitt í sex flokkum.

Verðlaunahafar voru þessir:

Hvunndagshetja: Guðbjörn Magnússon. Hann hefur gefið blóð 150 sinnum, oftar en nokkur annar.

Ung hetja: Gylfi Bragi Guðlaugsson. Hann er ungur blaðberi sem varð var við eld í íbúðarhús hringdi og hringdi á Neyðarlínuna.

Félagasamtök sem hafa sinnt börnum af sérstökum metnaði og alúð: Blátt áfram, forvarnarverkefni UMFÍ gegn kynferðislegu ofbeldi. Systurnar Svava og Sigríður Björnsdætur hafa beitt sér ötulega í forvarnarstarfi gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum.

Uppfræðari ársins: Þráinn Hafsteinsson og Þórdís Lilja Gísladóttir. Þau fá verðlaunin fyrir að standa að framúrskarandi frjálsíþróttastarfi með unglingum í ÍR.

Til atlögu gegn fordómum: Toshiki Toma. Sem prestur innflytjenda sem hefur Toshiki unnið mikið starf gegn fordómum gagnvart innflytjendum auk þess að koma með ný sjónarmið í umræðu um innflytjendamál og trúmál.

Þetta er í fyrsta sinn sem Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.