Blaðamaðurinn snýr aftur og mætir nú umhverfisfræðingi 2. mars 2006 06:30
Steinþór mætir til leiks í annað sinn en hann komst áfram uppúr fyrstu umferð með því að gera sér lítið fyrir og leggja Erling Hansson framhaldsskólakennara. Viðureignin sú reyndist æsispennandi og réðust úrslit ekki fyrr en í bráðabana. Verður því spennandi að sjá hvernig hinn 21 árs gamli blaðamaður og fyrrum Gettu betur keppandi fyrir Borgarholtsskóla stendur sig gegn umhverfisfræðingnum Birni Guðbrandi, sem mætir til leiks í fyrsta sinn. Björn Guðbrandur sat hjá í fyrstu umferð en hann er 48 ára gamall og starfar sem framkvæmdastjóri samtakanna Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs. Sigurvegarinn verður sá fjórði sem tryggir sér þátttöku í átta manna úrslitum Meistarans. Þeir sem hafa tryggt sér þátttökurétt í 8 manna úrslitum eru Kristján Guy Burgess, sem lagði Sævar Helga Bragason í síðasta þætti, Jónas Örn Helgason, sem lagði Hauk Harðarson og Snorri Sigurðsson sem lagði Önnu Pálu Sverrisdóttur. Næstu viðureignir eru sem hér segir:Erlingur Sigurðsson - Ólína Þorvarðardóttir Mörður Árnason - Stefán Halldórsson Illugi Jökulsson - Ágúst Gíslason Inga Þóra Ingvardóttir - Friðbjörn Garðarsson Um Meistarann:Meistarinn hefur fengið geysigóðar viðtökur síðan hann hóf göngu sína um síðustu jól. Það staðfestist í dagbókarkönnun Gallup, sem birt var á dögunum, en þar kemur fram að þátturinn er orðinn næstvinsælasti þátturinn á Stöð 2 á eftir Idol-Stjörnuleit með 41% uppsafnað áhorf meðal ákrifenda Stöðvar 2 og 21% meðal allra sjónvarpsáhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum kl. 20:05 og endursýndur á laugardögum kl. 16:00 og mánudögum kl. 23:00. Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV Einnig skal bent á vefsíðu þáttarins: www.visir.is/meistarinn Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um keppnina og keppendur, léttir spurningaleikir í boði og síðast en ekki síst þá bloggar Logi Bergmann reglulega um keppnina, spáir í spilin og greinir frá ýmsu kræsilegu sem ekki kemur fram í þáttunum sjálfum.
Meistarinn Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira