Innlent

Grunaður fíkniefnasali handtekinn á Ísafirði

MYND/frá lögreglunni

Lögreglan á Ísafirði lagði í gær hald á 50 grömm af hassi hjá rúmlega tvítugum manni. Maðurinn var í haldi í sólarhring vegna gruns um fíkniefnamisferli, nánar tiltekið fíkniefnadreifing á norðanverðum Vestfjörðum undanfarnar vikur og mánuði. Annar maður var handtekinn í Reykjavík og yfirheyrður vegna sama máls. Málið telst upplýst.

 

Grunur leikur á að maðurinn sem handtekinn var á Ísafirði hafi upphaflega haft meira magn fíkniefna undir höndum en það sem hald var lagt á í gær. Hann er talinn hafa sótt efnin til Reykjavíkur nýlega og flutt þau til Ísafjarðar í þeim tilgangi að selja þau þar og í nágrannabyggðarlögunum.

 

Maðurinn, sem lögreglan á Ísafirði var með í haldi, hefur ekki áður komið við sögu vegna fíkniefnamála. Honum var sleppt lausum í gærkveldi. Hins vegar hefur maðurinn, sem lögreglan í Reykjavík yfirheyrði, áður komið við sögu vegna fíkniefnamála. Honum var sleppt í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×