Ekkert lát á ofsaakstri ungra pilta 13. desember 2006 12:00 Ekkert lát virðist vera á ofsaakstri hjá ungum drengjum. MYND/Hörður
Sautján ára unglingur var sviptur ökuréttindum á staðnum eftir að lögreglan mældi hann á liðlega hundrað og fjörutíu kílómetra hraða á Gullinbrú í Grafarvogi í nótt. Fimm 17 ára piltar hafa verið stöðvaðir vegna ofsaaksturs á nokkrum dögum. Þar er hámarkshraðinn sextíu, en pilturinn var með aðeins fimmtán daga gamalt ökuskírteini. Jafnaldri hans með aðeins fimm dögum eldra ökuskírteini var svo stöðvaður á Hringbraut á rúmlega níutíu kílómetra hraða eða fjörutíu kílómetrum yfir hámarkshraða. Þriðji jafnaldri þeirra var svo tekinn á hundrað kílómetra hraða á Reykjanesbraut, á móts við Bústaðaveg, þar sem hámarkshraði er sjötíu kílómetrar. Þessu til viðbótar tók 16 ára piltur heimilisbílinn ófrjálsri hendi austur á Laugarvatni í gærkvöldi og ók á rafmagnskassa með þeim afleiðingum að hluti byggðarinnar myrkvaðist. Pilturinn slapp ómeiddur en bíllinn skemmdist. Ekki eru nema nokkrir dagar síðan að þrír aðrir 17 ára unglingar voru mældir á ofsahraða að kvöld- og næturlagi í borginni. Athygli vekur að engin 17 ára stúlka kemur við sögu lögreglunnar vegna ofsaaksturs en álíka margar stúlkur og piltar taka bílpróf á átjánda árinu.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira