Missir réttinn til sjúkradagpeninga 12. september 2006 12:27 Eins gott að verða ekki veikur ef maður er að byrja í nýrri vinnu og er að skipta á milli opinbera og almenna geirans. MYND/Haraldur Jónasson
Fólk sem skiptir um vinnu og fer frá stéttarfélögum hins opinbera til stéttarfélaga hins almenna markaðar eða öfugt missir rétt sinn til sjúkradagpeninga og lendir því oft í fjárskorti ef það veikist á fyrstu dögum í nýrri vinnu. Formaður BSRB segir kerfið einfaldlega vanþróað, eðlilegt væri að sjúkrasjóðir hefðu samstarf sín á milli, allavega um lágmarksréttindi. Frítökuréttur vegna veikinda sem fólk vinnur sér inn hjá vinnuveitanda erfist að öllu jöfnu ekki á milli vinnustaða þannig að þegar fólk skiptir um vinnustað þarf það að byrja upp á nýtt að safna upp veikindarétti. Fólk sem ekki hefur veikindarétt eða hefur klárað hann hjá vinnuveitenda sínum getur leitað til stéttarfélags sem það hefur borgað í og fengið bætur úr sjúkrasjóði eða sjúkradagpeninga. Ef starfsmaður hefur hins vegar skipt um vinnu milli opinbera og almenna geirans á hann ekki einu sinni rétt á að sækja í sjúkrasjóð nýja stéttarfélagsins fyrr en hann er búinn að vinna sér inn réttindi á nýja staðnum. Þess eru dæmi að fólk sem veikist á fyrstu dögunum í nýju starfi fái því reglum samkvæmt hvorki neina fjárhagsaðstoð frá vinnuveitenda eða stéttarfélagi og það eina sem fólk hafi að að hverfa séu 30 þúsund króna sjúkradagpeningar Tryggingastofnunar á mánuði. Formaður SFR viðurkennir að þarna sé bil sem sé óbrúað en hjá ASÍ fengust þau svör að í þessum málum væri engin samræmd stefna innan samtaka stéttarfélaganna, það væri á ábyrgð hvers og eins sjúkrasjóðs fyrir sig að gera tvíhliða samninga við sjúkrasjóði hins opinbera. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB segir muninn skýrast af því að sjúkrasjóðirnir séu afar misjafnir að stærð og efnum og búi við misjafnar reglur. Hins vegar væri eðlilegt og æskilegt að sjúkrasjóðirnir gætu haft samstarf, að minnsta kosti um lágmarksaðstoð. Bæði hjá VR og SFR og eflaust fleiri stéttarfélögum sagði starfsfólk þó að fólki sem lenti svona á milli skips og bryggju þegar það væri að byrja í nýrri vinnu fengi oftast einhverja undanþágu, í einhverja daga, þó það gangi gegn reglunum.
Mest lesið Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Innlent Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Erlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Erlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Erlent Sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Kærður fyrir að löðrunga hundinn sinn Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Botnlaus gróðafýsn, viðsnúningur í nauðgunarmáli og óánægja vegna Baldurs „Erum við að fara að deyja?“ Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Sjá meira